um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Umræðan í dag hefur sannfært mig enn meira en nokkurn tíma áður um að við þurfum rannsóknarnefnd. Við verðum að fá rannsóknarnefnd. Það sem var sagt hér í þessum ræðustól fyrir ekkert svo löngu talað um að það væri búið að gera upp hrunið, það væri búið að sjá til þess með einhverjum sýndarráðstöfunum að redda fólki, þeim 10.000–15.000 manns sem misstu heimili sín — þetta fólk er enn þá á leigumarkaði, okurleigumarkaði. Það er fólk sem hefur flúið land. Það er ekkert búið að gera fyrir það. Við gerðum upp bankahrunið með rannsóknarskýrslu um bankana, við gerðum líka rannsóknarskýrslu um fjárfestingar lífeyrissjóðanna og okkur ber skylda til að gera rannsóknarskýrslu um söluna á Íslandsbanka. Við getum ekki skorast undan því. Ég er alltaf að verða sannfærðari um að það er eina rétta leiðin.