152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:40]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér öðru sinni til að ítreka að samkvæmt vef Stjórnarráðsins var ekki til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundum frá 22. febrúar til 8. apríl að leggja ætti niður Bankasýsluna. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að á ríkisstjórnarfundi 22. apríl, þremur dögum eftir tilkynningu þriggja ráðherra í ríkisstjórn um að þeir ætluðu að leggja niður Bankasýsluna — á þeim fundi, þremur dögum síðar — var verið að ræða yfirlýsingu um að leggja niður Bankasýsluna. Yfirlýsingin er engu að síður þess eðlis að ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um þetta. Hér leyfir hæstv. fjármálaráðherra sér í alvöru að tala um að það hafi verið búið að ræða þetta í ríkisstjórn en það sjást engin merki um það á vef Stjórnarráðsins fyrr en eftir tilkynningu. Þetta skiptir máli. Við vitum að þetta skiptir máli og vísa ég þar í landsdóminn sem ég tala um í grein í Morgunblaðinu í dag.