um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Í 17. gr. stjórnarskrárinnar og í III. kafla laga um Stjórnarráð Íslands eru settar fram mjög mikilvægar reglur um m.a. skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni og um það hvernig ríkisstjórn starfar sem samráðsvettvangur ráðherra. Þetta eru reglur sem eru þarna af ástæðu og við eigum að taka þessar reglur alvarlega, sama hvað okkur finnst um landsdóm, það fyrirkomulag, og hvort það hafi verið rétt að draga mann fyrir landsdóm fyrir mörgum árum o.s.frv. Ég verð að vekja athygli á því sem kom fram í ræðu hæstv. forsætisráðherra áðan. Ég fæ ekki skilið ræðu hæstv. ráðherra öðruvísi en svo að oddvitar ríkisstjórnarflokkanna telji sig þess fullkomlega umkomna, án þess að ákveða það formlega á þessum samráðsvettvangi sem ríkisstjórnarfundir eru, (Forseti hringir.) að tilkynna um að ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um eitthvað. Ég held að núna í framhaldinu (Forseti hringir.) verðum við að lesa allt það sem kemur fram á Stjórnarráðsvefnum og tilkynningar frá ríkisstjórninni með allt öðrum augum ef það liggur fyrir (Forseti hringir.) að forsætisráðherra telur sig ekki þurfa að ákveða þetta með formlegum hætti á ríkisstjórnarfundi.