152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Forsvarsmenn Bankasýslunnar mættu á fund efnahags- og viðskiptanefndar tveimur dögum eftir sölu Íslandsbanka. Og hafi ég einhvern tímann séð hamingjusama menn þá voru það þeir. Þeir voru svo ánægðir, eins og það kemur mér fyrir sjónir þá bara ískraði í þeim af ánægju. Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu en hamingjan algerlega skein af þeim yfir vel heppnaðri sölu. Þetta var tveimur dögum eftir söluna. Voru þeir á þeim tímapunkti virkilega ekki búnir að átta sig á hversu mikið klúður þetta var eða hvíldu þeir bara enn þá í því að þeir þyrftu aldrei að gefa upp kaupendurna, þeir myndu alltaf komast upp með þetta án þess að þurfa nokkuð að gefa upp um hvernig þetta hefði í raun og veru farið fram? Þeir voru a.m.k. alveg gríðarlega ánægðir. Hvað breyttist annað en það að þeir þurftu að gefa upp hverjir keyptu og hvernig þetta fór fram? Það að mæta ekki þegar Alþingi boðar mann á fund (Forseti hringir.) hlýtur að vera alvarlegt og ég velti fyrir mér hvort ég myndi komast upp með það (Forseti hringir.) ef t.d. lögreglan myndi kalla mig til yfirheyrslu. Ég efast um það.