um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég ætla bara að halda áfram að gagnrýna það hvernig hér er talað um störf ríkisstjórnarinnar eins og það sé fjölskipað stjórnvald þar sem menn geti ekki tekið ákvörðun án þess að koma saman. Staðan er sú að bankasýslumálefnin eru hjá fjármálaráðherra og það er hann sem gerir tillögur til ríkisstjórnar sem er samráðsvettvangur um breytingar á lögum eða öðru sem varðar Bankasýsluna. Ríkisstjórnin, sama hvort hún kemur saman eða ekki, getur enga endanlega ákvörðun tekið í málefnum Bankasýslunnar til eða frá heldur er háð því að fá samþykki Alþingis. Í þessari tillögu er boðað að talsmenn flokkanna hafi komist að samkomulagi, eftir að hafa rætt málin í bak og fyrir í aðdraganda útboðsins á ríkisstjórnarfundi, ekki sem formlegt erindi heldur margrætt í ríkisstjórn, og í yfirlýsingunni er boðað að þeir muni ræða málið frekar og á endanum leggja til við Alþingi að gera breytingu. Það er fáránlegt að vera að nefna lög um ráðherraábyrgð (Forseti hringir.) í þessu samhengi, fáránlegt, og grundvallarmisskilningur um það, (Forseti hringir.) jafnvel þótt málið hefði verið rætt á ríkisstjórnarfundi, að það hefði breytt einhverri ákvörðun. Alþingi hefur lokaorðið. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er ekki fjölskipað stjórnvald. Punktur. (Gripið fram í.)