152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:47]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Nú er hæstv. fjármálaráðherra orðinn vanstilltur og honum finnst eflaust að við séum að festast í forminu. En við þekkjum hvað gerist eða getur gerst ef við pössum okkur ekki að halda okkur í því. Ráðherra talar um einhverja óformlega umræðu um þetta í aðdraganda sölunnar. En í yfirlýsingunni stendur:

„Þeir annmarkar sem í ljós hafa komið við undirbúning og framkvæmd sölu á eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum hafa leitt í ljós þörfina fyrir endurskoðun á lagaumgjörð og stofnanafyrirkomulagi.

Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður.“ (Fjmrh.: Leggja til.)

Þetta litla orð „því“. Það er nefnilega það síðara sem leiðir af því fyrra. Hæstv. fjármálaráðherra getur ekki vísað í einhverjar umræður sem áttu sér stað fyrir einhverjum vikum, einhverjum mánuðum eða árum, enda hefur hæstv. fjármálaráðherra svo sem talað um það í mörg ár að leggja niður Bankasýsluna.