152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:48]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég vildi í fyrsta lagi árétta það, bara svo það sé skýrt, að þessi mál hafa fimm sinnum verið til umræðu í ríkisstjórn. Ég vitnaði hér til umræðu sem var um þessa tilteknu sölu þann 8. apríl. Það mál var ekki á fjölmiðladagskrá, bara svo það sé sagt, af því að hv. þm. Helga Vala Helgadóttir vitnaði til hennar. Stundum eru ekki öll mál á fjölmiðladagskrá ef þau eru tekin upp undir öðrum málum en sú fundargerð hefur hins vegar farið til Ríkisendurskoðunar sem hefur óskað eftir fundargerðum um alla þá umræðu. Mér finnst mikilvægt að þetta komi hér fram þannig að hv. þingmaður telji ekki að ég hafi farið með rangt mál um það. Síðan vil ég ítreka að það er svo að yfirlýsingin er gefin út af okkur þremur, forystumönnum ríkisstjórnarinnar, og einhverjum kann að þykja það minna á Loðvík 14. Ég held að þeir þingmenn verði bara að eiga það við sig. Þar tölum við fyrir ríkisstjórninni, eins og við gerum í stjórnarsáttmála margoft þar sem við boðum tiltekin áform. En augljóslega eru ákvarðanir svo teknar með formlegum hætti. (Forseti hringir.) Ég vil minna á það að sá ráðherra sem ber ábyrgð á þessu máli og fer með það að leggja á endanum fram frumvarp og leggja þetta til við þingið er aðili að þessari yfirlýsingu. (Forseti hringir.) Ég held að öðru leyti að það sé mikilvægt að skýra sem mest hér því að ég heyri það að þessi umræða er (Forseti hringir.) úti um víðan völl og greinilega margt sem þarf að skýra.