um fundarstjórn.
Forseti. Í 17. gr. stjórnarskrárinnar stendur að ráðherrafundi skuli halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Nú kemur hæstv. forsætisráðherra hérna og segir okkur að það hafi verið umræða um þessa Bankasýslu 8. apríl undir öðrum málum. Var einhver sem bókaði það? Hvernig vitum við að það hafi verið skýrt og augljóst að svona mikilvægt mál hafi verið rætt undir öðrum málum þannig að ríkisstjórnin ákvað að leggja Bankasýsluna niður? Það væri áhugavert að sjá það. Ég hlakka til. Það er ekkert að því svo sem nema hvað að slíkt mikilvægt mál hefði væntanlega átt að hafa dagskrárlið fyrir sig.