152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra minnti okkur á að ríkisstjórn Íslands væri ekki fjölskipað stjórnvald. Það er áminning sem er kannski best að vísa til ríkisstjórnarinnar sjálfrar af því að á síðasta kjörtímabili kom hún æ oftar fram sem slíkt. Til að breiða yfir ósætti innan stjórnarflokkanna um sóttvarnaaðgerðir var alltaf birt í fréttatilkynningum að ríkisstjórnin hefði samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra um þrengingar á frelsi fólks í landinu. Þannig voru þau öll orðin samábyrg einhvern veginn þótt, eins og fjármálaráðherra segir, það hafi bara verið heilbrigðisráðherra sem réð þessu. Þannig að eðlilega er fólk í Stjórnarráðinu farið að ruglast aðeins á því hvort það er fjölskipað stjórnvald eða ekki.

En hlustum líka eftir öðru orði sem kom frá hæstv. forsætisráðherra sem er fjölmiðladagskrá. Í reglum um starfshætti ríkisstjórnar segir að dagskrá ríkisstjórnar skuli gerð opinber að fundi loknum og send fjölmiðlum og kynnt þeim. Það er nefnilega ekki alvörudagskráin, það er fjölmiðladagskráin þar sem m.a. er búið að má út (Forseti hringir.) allt sem gæti vísað í einhverja misklíð milli stjórnarflokkanna. (Forseti hringir.) Þetta pukur er slæmt.