152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:55]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég held að við áttum okkur öll á því sem sitjum í þessum sal hér í dag að það á að leggja Bankasýsluna niður til að bjarga lífi ríkisstjórnarinnar. Þannig á að benda á hann en ekki hinn. Ég held að svarið sé hið sama og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir benti á. Við þurfum að skipa rannsóknarnefnd. Mig langar í því sambandi að vísa til orða hæstv. forsætisráðherra árið 2017 þegar hún sagði:

„Íslenskt samfélag hefur orðið gegnsýrðara af grunsemdum og tortryggni á síðustu árum þegar kemur að viðskiptalífinu og þessi tíðindi sýna að eina leiðin til að eyða þeirri tortryggni sé að sýna vönduð vinnubrögð, ráðast í gagngera rannsókn á söluferlinu öllu eins og Alþingi samþykkti árið 2012 þannig að hægt sé að horfa fram á veginn, draga lærdóm af ferlinu áður en ráðist verður í aðra einkavæðingu á hlut ríkisins í bönkunum. Hæstv. ráðherra hefur boðað sölu á hlut ríkisins í bönkunum en hann hefur líka sagt, frú forseti, að mikilvægt sé að taka sér þann tíma sem þarf. Er ekki ástæða til að ljúka rannsókn á þessu ferli þannig að við fáum allt fram um þetta mál sem hefur hvílt eins og mara á þjóðinni?“