152. löggjafarþing — 68. fundur, 25. apr. 2022.
sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ef hv. þingmaður hefði nú verið að hlusta á ræðuna mína, sem ég var að ljúka við og stóð í 20 mínútur, hefði hann fengið ágætisyfirsýn yfir þá helstu annmarka sem ég hef staldrað við. Það sem einkum er verið að vísa til í yfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna eru atriði sem lúta að gagnsæi og upplýsingagjöf.