sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég get nú glatt hv. þingmann, held ég, þegar ég segi við hana að að hún þurfi ekki að óttast vegna þess að ríkisstjórnin hefur boðað að nýtt fyrirkomulag verði tekið upp við frekari sölu á eignarhlutum ríkisins. Þá getur hv. þingmaður tekið ríkan þátt í því að hafa skoðun á útfærslunni og tryggt örugga áframhaldandi sölu á því sem núna er orðinn minni hluti í bankanum og við haldið áfram við það mikilvæga verkefni að koma samkeppnisfyrirtæki í hendur einkaaðila úr ríkiseign og í ríkisrekstri, vegna þess að við höfum annað þarfara við þessa gríðarlega stóru fjárskuldbindingu að gera. Og ef við tökum nú saman höndum, ég og hv. þingmaður, og gerum þetta vel þá bara þarf ekkert að líða mjög langur tími.