Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[18:47]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrir það fyrsta þá geri ég mér alveg grein fyrir að það er fjármálaráðherra sem kvittar upp á ferlið. En það sem ég átti við í minni ræðu er að maður gerði ekki athugasemd og vissulega ber maður ábyrgð á því. En að spurningunni sem sneri að varaformanni Framsóknarflokksins þá vill nú þannig til að ég sit ekki í þessum nefndum eða í ríkisstjórn og það sem fer fram á þingflokksfundum er nú yfirleitt ekki rætt opinberlega. En hvort ráðherra hafi rætt þetta persónulega við mig — svarið er nei.