152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er nú einu sinni þannig að ég legg það ekki í vana minn að endurtaka það sem ég er nýbúinn að svara áður. En ég vil koma inn á það hér, bara svo menn séu alveg einlægir í því sem þeir segja hér í ræðum, og ítreka það sem ég sagði áðan í minni ræðu, að vissa hluti sá maður ekki fyrir þegar við vorum að fara yfir þetta útboðsferli og niðurstaðan veldur manni ákveðnum vonbrigðum. Það er bara þannig. Mér finnst vera mjög mikilvægt fyrir okkur þingmenn að þegar menn telja sig geta gert betur en þeir hafa gert í sinni vinnu þá eigi þeir líka bara að viðurkenna það. Og það er það sem ég er að gera hér, að við hefðum getað staðið okkur betur í því að vinna málið áfram til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri.