152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:02]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Nú um helgina steig hæstv. fjármálaráðherra fram og hæddist mjög að stjórnarþingmönnum. Hann sagði, svo ég leyfi mér að vitna orðrétt í hann: Margir þeirra sem sátu þessa fundi — þ.e. þar sem fyrirhuguð bankasala var kynnt — segja núna: Ég kem af fjöllum. Það sagði mér þetta enginn, jafnvel fólk sem er á nefndarálitum hér á Alþingi. Þarna virðist hæstv. ráðherra a.m.k. ekki vera að vísa til stjórnarandstöðunnar vegna þess að við vorum ekki á neinum álitum að mæla með þessu. Hann hlýtur þarna að vera að vísa til t.d. Þórarins Inga Péturssonar sem sér eftir þessu eða er að velta þessu fyrir sér eftir á og jafnvel til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur sem hefur einmitt talað á þennan veg. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um þennan málflutning fjármálaráðherra í garð stjórnarþingmanna.