sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt andsvar. Varðandi spurningu um það hvað mér finnist um ummæli hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í þessu samhengi þá má hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafa sína skoðun á því. Ef við hefðum haft sömu upplýsingar og hæstv. ráðherra í þessu samhengi værum við kannski ekki í þeirri stöðu sem við erum í í dag. Þá værum við ekki heldur að ræða um þá hluti akkúrat núna sem ég var að ræða og við erum að skiptast á skoðunum um, ég og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson. Hvað mér finnist um þá skoðun? Líklega er það þannig að þegar menn hafa aðgang að frekari upplýsingum og enn meiri þá er væntanlega verið að benda okkur hinum stjórnarþingmönnum á að við þyrftum kannski að vinna heimavinnuna betur.