152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er talað um upplýsingagjöf og í raun gefið í skyn að upplýsingum hafi verið haldið frá Alþingi í þessu ferli. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Ef svo er, er það þá ekki einmitt á ábyrgð fjármálaráðherra? Það var ekki Bankasýslan sem kom fyrir þingið með greinargerð. Sú skylda, sú ábyrgð, hvílir á fjármálaráðherra sjálfum. Ef þetta eru þeir annmarkar, sem reyndar hæstv. ráðherra talaði um sjálfur þegar ég spurði hann hvaða annmarkar það væru sem ríkisstjórnin væri að vísa til — eða reyndar oddvitar stjórnarflokkanna, hefur komið í ljós í yfirlýsingu hennar — þá nefndi hann upplýsingagjöf og gagnsæi. Telur hv. þingmaður að þetta séu annmarkar sem séu sérstaklega á ábyrgð Bankasýslunnar frekar en ráðherra? Ef hann veltir aðeins fyrir sér lögunum og þessari ábyrgð sem ráðherra ber gagnvart Alþingi, þegar hann kemur með greinargerð (Forseti hringir.) bæði fyrir efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd, eru orð hv. þingmanns (Forseti hringir.) ekki svolítið þungur áfellisdómur yfir hæstv. fjármálaráðherra?