152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:06]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel svo ekki vera að þau orð sem féllu áðan séu álitshnekkir í garð hæstv. ráðherra fjármála og efnahagsmála. Sjálfur hefur hæstv. ráðherra, eins og kom fram fyrr í dag í umræðunni, verið að gagnrýna nákvæmlega það sama og ég var að gagnrýna í minni ræðu og sneri að upplýsingaflæði og gegnsæi. Og af því að hv. þingmaður vísaði áðan í ummæli sem ráðherra lét falla á dögunum þá var væntanlega í því samhengi verið að vitna til annarra þingmanna en þess sem hér stendur vegna þess að sá þingmaður sem hér stendur hefur ekki tjáð sig um þessi mál áður. Ef ég svara örstutt hvað þetta varðar þá tel ég svo ekki vera og ég tel líka að það hafi komið nokkuð skýrt fram í máli ráðherra fyrr í dag að það þarf að fara ofan í saumana á málinu að hans frumkvæði.