sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Við þurfum að átta okkur aðeins á umfanginu og ramma þetta aðeins inn til að reyna að vera aðeins málefnaleg í þessu eins og við höfum reynt að vera í stjórnarandstöðunni, en við eigum í mjög miklum erfiðleikum með það sem fjármálaráðherra lætur vaða yfir okkur í alls konar strámannsleik. Í greinargerð fjármálaráðuneytisins — og þetta er frá fjármálaráðuneytinu sjálfu — segir:
„Með tilboðsfyrirkomulagi, líkt og því er almennt beitt, er verð seldra hluta ákveðið með hliðsjón af síðasta dagslokagengi hlutabréfa og er þá veittur lítilsháttar afsláttur frá því. Ástæða þess“ — ástæðan skiptir alltaf máli — „er sú að verið er að auka framboð bréfa á markaði og óska eftir því að hæfir fagfjárfestar kaupi stærri hlut, þar sem óvissa er um nákvæma þróun dagslokagengis næstu vikur á eftir.“
Og úr greinargerð Bankasýslunnar, með leyfi forseta:
„Sala með tilboðsfyrirkomulagi fer fram með lokuðu útboði til hæfra fjárfesta.“
Hér hefur aðeins verið ruglað á milli hæfra fagfjárfesta og hæfra fjárfesta, en í lögunum er þetta nákvæmlega það sama. Þetta eru bara tvö hugtök um nákvæmlega sama mál. Allt í lagi. En hér er verið að tína inn fullt af smærri fjárfestum sem eru að kaupa rétt rúmlega það sem almenningur fékk að kaupa í opnu útboði í fyrra, sem geta selt strax daginn eftir. Vissulega var það ekki meiri hlutinn sem seldi, enda hefur ekkert verið sagt um það, nema náttúrlega ráðherra eys því yfir alla, en það voru sölur daginn eftir og næstu daga og næstu vikur, þó nokkuð mikið. Ef ég sé þetta rétta á Keldunni voru seldar næstum því 400 milljónir hluta á þessum útboðsdegi og einhverjar 100 milljónir í vikunni í kjölfarið. Þessir smærri fjárfestar sem geta selt strax daginn eftir, það er verið að gefa þeim afsláttinn. Þetta eru ekki næstu vikur. Viðmiðið í þessu útboði er að ríkið er að skuldbinda sig til að setja ekki fleiri hluti á markað næstu þrjá mánuði. Í fyrsta útboðinu voru það sex mánuðir, að það ætti að vera viðmiðunartímabilið um það hvernig gengið er að þróast upp á það hvernig það er að heppnast að vera í útboðinu.
Hæstv. ráðherra segir mjög oft að hitt og þetta standist enga skoðun og pælum aðeins í því, eins hæstv. ráðherra segir:
„Við höfum náð langflestum af okkar markmiðum. Ef menn skoða þetta af einhverri sanngirni þá erum við með stórkostlegan árangur fyrir ríkissjóð varðandi Íslandsbanka. Við höfum séð verðmæti bankans hækka um 100 milljarða.
Nú er það svo að undirverðlagður banki hækkar mjög auðveldlega. Við vorum vöruð við því að bankinn væri undirverðlagður í fyrsta útboðinu, mjög skýrt. Þegar ráðherra sér einmitt þvílíka eftirspurn sem var þá fóru engin flögg í gang: Vá, hérna er kannski offramboð, umframeftirspurn, og ég gæti selt bankann á hærra verði. Nei, hann seldi fyrir allan leyfilegan hlut, 35%, ekki bara 10% eða eitthvað svoleiðis til að reyna að ná gengi hlutabréfanna á réttan kjöl eða eitthvað því um líkt og mjatla hinu inn aðeins seinna, til þess að stærri hluti af fyrsta útboðinu væri seldur nær réttu verði. Það er mikið verið að vísa til ABN AMRO og Alight Irish Bank sem voru seldir með svipuðu fyrirkomulagi, hlutabréfaverð á þeim í sama fyrirkomulagi hélst nokkurn veginn það sama næsta hálfa árið eftir slíkt útboð, næstum því það sama, hækkaði aðeins hjá ABN í fyrstu, en eftir hálft ár var hlutabréfaverðið nákvæmlega það sama og í útboðinu. Það voru tiltölulega vel heppnuð útboð, er sagt. Við erum með 60% hækkun á hálfu ári, 60% hækkun. Það er ekki vel heppnað.
Pælum aðeins í því hvernig við seljum banka samkvæmt lögum. Bankasýslan vaktar hvort aðstæður séu til að selja banka og lætur ráðherra vita. Ráðherra tekur ákvörðun um hvort fallast eigi á tillögu Bankasýslu um að það eigi að selja, að það séu góðar aðstæður. Það hefur komið fyrir að Bankasýslan hafi sagt: Hey, það eru góðar aðstæður. Og ráðherra brást við og sagði nei, enda kom Covid og eitthvað svona skemmtilegt, eða leiðinlegt, þannig að það er ákvörðun ráðherra hvort fara eigi eftir ráðleggingum Bankasýslunnar eða ekki. Ráðherra leitar síðan umsagna Seðlabanka Íslands og í greinargerð eiga að koma fram upplýsingar um helstu markmið með sölu eignarhlutarins, ýmislegt svoleiðis. Nefndum þingsins skal veittur hæfilegur frestur til að gera athugasemdir við efni greinargerðarinnar. Það eru einfaldlega bara athugasemdir um efni greinargerðarinnar.
Nefndir þingsins fengu ekki mikinn tíma í þetta skipti, langt í frá. Það var í raun bara vika af vinnu þingsins, þar sem við fengum gesti tvisvar, Bankasýsluna, ráðuneytið og nokkra sérfræðinga í málinu. Að liðnum fresti skal ráðherra síðan taka ákvörðun um hvort sölumeðferð verði hafin og tekur tillit til athugasemda þingsins ef ráðherra vill, eða ekki. Svo þegar ákvörðun er tekin á að leggja áherslu á opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni. Þar er einmitt sagt að með hagkvæmni sé leitað hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhluti. Það er alveg skiljanlegt, þegar verið er að velja ákveðnar aðstæður, eða verið að reyna að velja tiltekinn eigendahópi eða eitthvað því um líkt, að langhæsta verð hliðrist til. Það er alveg skiljanlegt. Þegar verið er að reyna að finna framtíðareigendur með tilboðsfyrirkomulaginu, eins og sagt er í greinargerðinni sem var vitnað til, er eðlilegt að veita lítils háttar afslátt. Við viðurkennum það alveg. Það er ekkert að því. Það er allt annað sem er að þessu. Bankasýsla ríkisins undirbýr sölu, leitar tilboða o.s.frv. og þegar tilboð í eignarhlut liggja fyrir skal Bankasýsla ríkisins skila ráðherra rökstuddu mati á þeim og ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað.
Nú eru lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum m.a. á þennan hátt, með leyfi forseta:
„Með því er átt við að þegar sala fer fram á eignarhlutum séu mögulegir kaupendur metnir með hliðsjón af því hvernig þeir hyggjast reka fyrirtækið í framtíðinni, svo sem með tilliti til samfélagslegrar ábyrgðar og framtíðaruppbyggingar þess. Með því er reynt að horfa til framtíðar og sjá fyrir sér hvernig rekstur fyrirtækisins verður í framtíðinni.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að almennt skuli eignarhlutir boðnir til sölu með opinberum hætti. Beita má mismunandi aðferðum við sölu eignarhluta í fyrirtækjum en sú leið sem til greina kemur er vitaskuld m.a. háð aðstæðum og stærð viðkomandi fyrirtækis, svo og aðstæðum á markaði þegar salan fer fram. Viðhorf og markmið stjórnvalda skipta meginmáli varðandi hvaða leið er valin hverju sinni og nauðsynlegt að þetta val sé ávallt fyrir hendi og að ekki sé þrengt að því með of íþyngjandi reglum eða lögum. Ýmsar leiðir koma til greina við sölu á eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum, m.a. almennt útboð verðbréfa, skráning bréfa fjármálafyrirtækis á skipulegum verðbréfamarkaði eða tilboðssala.“
Og einnig segir:
„Nauðsynlegt er að við mat á tilboðum og ákvörðun um töku tilboða hafi þessir aðilar að leiðarljósi þær forsendur og þau skilyrði sem lögð voru til grundvallar við sölumeðferð skv. 2. gr. og koma fram í auglýsingu eða boði til væntanlegra kaupenda um tilboðsgerð.“
En hvaða forsendur og skilyrði voru sett? Þar er skilyrði eins og að minnka áhættu ríkisins á svo stórum eignarhlut, að efla virka samkeppni eða hámarka endurheimtur ríkissjóðs, að stuðla að fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi til lengri tíma, að auka fjárfestingarmöguleika og minnka skuldsetningu. Það voru ekkert sérstaklega margar athugasemdir gerðar við þetta, almenna fyrirkomulagið, en það eru þarna atriði sem koma fram í greinargerðinni — það var verið að nýta tilboðsfyrirkomulagið til að selja til stærri hluthafa, að fagfjárfestar, hæfir fjárfestar, væru að kaupa stærri hlut. Og það er skýrt, í lokuðu tilboðsferli, það er mjög mikilvægt, að aðrar reglur gildi um það þegar ráðherra er að skoða hvort farið sé eftir þessum forsendum eða ekki. Í almennu útboði, eins og var í fyrsta skipti, þegar 24 til 25 þús. manns voru að kaupa, er ráðherra að sjálfsögðu ekki að fara yfir hvert og eitt einasta tilboð. Að sjálfsögðu ekki. Þær spurningar sem ráðherra hefur um hvort aðgengið hafi ekki örugglega verið fyrir alla — þannig spurninga er ráðherra að spyrja þá. En þegar það er lokað útboð þá eru allt aðrar reglur. Þá þarf ráðherra að fara yfir hvert og eitt tilboð til að athuga hvort það standist skilyrðin. Í lokuðu útboði skiptir það öllu máli — þetta er lykilatriði — að hæstv. ráðherra seldi pabba sínum hlut í ríkisfyrirtæki. Þetta er ekkert flókið. Þetta er lykilatriðið í öllu. Það er fullt af öðru klúðri en þetta er lykilatriði gagnvart ráðherra. Ráðherra seldi pabba sínum hlut í ríkisfyrirtæki.
Og reynum að útskýra aðeins af hverju það er alvarlegt mál. Við erum með lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þar er talað um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þegar mamma fer út í banka og ætlar að opna bankabók þá fer hún á lista. Heyrðu hér er aðili sem er með tengsl við stjórnmálamann sem þarf að skrifa undir fullt af pappírum. Þegar pabbi fjármálaráðherra er að fara að kaupa hlut í banka þá á að láta vita. Það þýðir að fjármálaráðherra á að vita, þegar hann er að kvitta undir tilboð, að pabbi hans sé að kaupa í banka. Hann á að vita af því út af þessum lögum. Við erum líka með siðareglur ráðherra, hagsmunatengsl og hagsmunaárekstra. Ráðherrar forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra og persónulegra hagsmuna sinna og fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Það er meira. Það eru stjórnsýslulög. Það eru vanhæfisástæður sem fjalla um að viðkomandi starfsmaður eða nefndamaður sé vanhæfur til meðferðar máls ef hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða með öðrum hætti tengdur vegna ættleiðingar og fjölskyldutengsla. Og það er sérstaklega útskýrt að þegar ráðherra verður vanhæfur, þetta er útskýrt í greinargerð með þeim lögum, og víkur sæti — það er fullt af fordæmum fyrir því að ráðherra hafi vikið sæti. Það var t.d. verið að skipa dómara og einhver af umsækjendunum var tengdur fjölskylduböndum. Þetta á ekki að koma neinum á óvart. Ég held að nýjasta dæmið hafi verið þegar fyrrverandi umhverfisráðherra steig til hliðar út af málsókn Landverndar gagnvart ríkinu og annar ráðherra kom í staðinn. Það er ekki neitt sem ætti að koma okkur á óvart við það að þegar ráðherra ætlar að selja fjölskyldumeðlim hlut í ríkisfyrirtæki sé hann vanhæfur frá A til Ö. Hann getur ekki skorast undan því með því að segja: Ég vissi ekki. Það er ástæðan fyrir því að við setjum svona í lög, að tryggja þetta. Það eru ekki rök í málinu að þú hafir ekki vitað það, þú áttir að vita það. Ekki bara af því að í lögum um peningaþvætti og vernd gegn hryðjuverkum er sagt að það eigi að láta vita af því þegar það er að gerast heldur líka út af þeim tengslum, þeim mögulega óformlegu tengslum, sem geta átt við þessa aðila, fjölskyldumeðlimi o.s.frv., sem gerir það að verkum að þú getur ekki afsakað þig með orðunum: Ég vissi það ekki. Ráðherra hefur m.a.s. sagt að í fyrra útboðinu hafi hann látið fjölskylduna sína vita: Ekki kaupa. Hann vissi af því að það væri vandamál. Svo þegar komið er að lokuðu útboði þá á ráðherra að fara í gegnum tilboðin. Hefði hann gert það hefði hann séð: Heyrðu, hérna er pabbi. Ég er vanhæfur. Ég verð að sitja hjá. Það gerði hann ekki og það er vanræksla af því að hann á að skoða öll tilboðin. Það er ráðherra sem tekur ákvörðunina. Þetta er rosalega skýrt í öllum lögum sem við höfum sett, öllum siðareglum sem við höfum sett, að þarna er um vanhæfi að ræða. Þarna er skýrt hvað ráðherra á að gera og hvað ráðherra gerði ekki og þá er það vanræksla. Það er ekki flókið mál.
Það er síðan ýmislegt annað í þessu ferli sem maður myndi vilji gera athugasemdir við en það er einhver mínúta eftir. En ég legg sérstaka áherslu á þetta sjónarmið af því að einhvers konar upphlaup virðist vera í því að redda ráðherra með því að kasta Bankasýslunni fyrir rútuna. Ég er ekki að segja að Bankasýslan sé eitthvað heilög — það er bókað mál að þar er líka klúður, að mínu mati. En það er ekki annað hvort eða. Það getur verið að bæði ráðherra og Bankasýslan, og meira að segja söluráðgjafarnir líka — það er klúðrað á öllum stigum. Það þýðir ekki að við getum leyst það vandamál með því að henda Bankasýslunni fyrir rútuna eða kannski einhverjum söluráðgjöfum og sagt: Já, þarna. Við fundum vandamálið. Hunsum síðan öll hin vandamálin. Hunsum það að fjármálaráðherra seldi pabba sínum banka. — Það gengur ekki.