152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:31]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta eru búnar að vera ljómandi góðar umræður hérna í dag, alveg óhætt að segja það. Hér hefur margt komið fram sem ég ætla svo sem ekkert að endurtaka sérstaklega. Það hefur legið alveg ljóst fyrir frá því að þetta mál kom upp að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna hafa talað skýrt vegna þessara álitamála sem hafa komið upp vegna sölunnar á Íslandsbanka. Það er mjög mikilvægt að það verði farið nákvæmlega yfir það hvernig staðið var að þessari sölu og þess vegna er það auðvitað afar dapurt að við skyldum ekki vera búin að fá Bankasýsluna til fundar við fjárlaganefnd, sem hefði gagnast okkur talsvert mikið í þessari umræðu hér í dag.

Við höfum litið á þetta þannig að það sé rétt að hefja rannsókn hjá þeim stofnunum sem við treystum til að gera slíkt og er ætlað að gera það, í þessu tilfelli Ríkisendurskoðun sem er sjálfstæð í sinni vinnu. Hún hefur nú þegar hafið athugun á málinu og sömuleiðis Fjármálaeftirlit Seðlabankans sem rannsakar það sem snýr að þeirra eftirlitsþætti. Við höfum líka sagt að leiði þessar rannsóknir í ljós frekari misbresti á þessu söluferli þá munum við að sjálfsögðu leggja mat á það hvort við þurfum að setja af stað sérstaka rannsóknarnefnd um málið til að upplýsa það enn frekar eða eftir atvikum fer málið í eitthvert ferli annað ef svo ber undir. Það er mikilvægt að halda því til haga, líka í þessu sambandi, af því að við höfum rætt talsvert um í hvaða farveg þetta eigi að fara, að við þekkjum auðvitað þennan tíma sem fylgir rannsóknarnefnd og hann er talsvert lengri og við þurfum að reyna að fá a.m.k. einhverjar frumniðurstöður í máli hið fyrsta. Þess vegna held ég að það hafi verið rétt ákvörðun að hefja rannsókn ríkisendurskoðanda. Í lögum um rannsóknarnefndir segir um undirbúning tillögu að stofnun rannsóknarnefndar, að áður en hún sé lögð fram skuli vera lagt sérstakt mat á tilefni og grundvöll rannsóknar, hvert sé mögulegt umfang hennar og afmörkun og hvort önnur úrræði séu tiltæk. Ég tel að við séum stödd í þessu ferli, þ.e. að fylgja þessum lögum og að nýta þau úrræði sem við höfum þegar til staðar. Ég vona svo sannarlega að við náum fram svörum þessara aðila áður en þingi lýkur núna fyrri part sumars.

Varðandi tilvonandi framlagningu frumvarps þess efnis að leggja af Bankasýslu ríkisins þá hefur umræðan hverfst að miklu leyti um pólitíska ábyrgð og að henni sé hent út í hafsauga með þessu útspili, að Bankasýslan verði að blóraböggli fyrir misfarir ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi. Ég er þessu ekki sammála. Ég tel að það sé ákveðin pólitísk ábyrgð fólgin í því, m.a. með því að birta lista kaupenda, sem Bankasýslan ætlaði sér ekki að birta, þannig að ég tel að línan hafi verið nokkuð skýr. Við lögðum af stað með það að salan væri hafin yfir allan vafa og um hana myndi ríkja traust. Það er alveg augljóst að það hefur ekki gengið eftir. Það sjáum við auðvitað bara á viðbrögðum úti í samfélaginu. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við fáum Bankasýsluna á fund til að fara yfir allt þetta ferli og allar þær spurningar sem nefndin sendi sannarlega til stofnunarinnar. Ég vil nú segja það að fyrir mína parta er þetta síðasta útspil þessarar téðu stofnunar kannski síst til þess fallið að draga úr þeirri ákvörðun um að leggja hana niður. Það er mjög dapurt að hafa þurft að fresta þessum fundi sem átti að vera í morgun, það tefur allt okkar eftirlitsstarf. Ég tel að Bankasýslan hafi haft nægan tíma til að svara flestum þeim spurningum sem við þingmenn sendum henni í aðdraganda páska. Reyndar hef ég sagt það og stend við það að ég tel að svörin við allflestum þeim spurningum sem fóru frá fjárlaganefnd hefðu átt að liggja fyrir í rauninni þegar salan fór fram eða útboðið. Þannig að ég neita því ekki að mér þykja þau taka sér drjúgan tíma til að svara þessu.

Við erum auðvitað öll mjög ósátt við þessa stöðu eins og hún blasir við okkur og hér hefur verið sagt að meira verði ekki selt fyrr en við verðum búin að komast til botns í þessu máli. Við þurfum með einhverjum hætti að bæta lagaumhverfið og við þurfum að tryggja betri aðkomu og umfjöllun þingsins, bæta kerfin okkar með lagabreytingum, ekki síst til að reyna að tryggja sátt um sölu ríkiseigna í framtíðinni. Við gerum það ekki án nauðsynlegra umbóta og þær eru svo sem þegar hafnar.

Varðandi það sem líka hefur verið rætt svolítið hérna og ég ætla að koma inn á, þ.e. þegar kynningin átti sér stað fyrir líklega báðum nefndunum, bæði fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd, þá tek ég alveg heils hugar undir að það kom mjög á óvart að útboðið hefði farið fram með þeim hætti sem það á endanum gerði. Það er nefnilega ekki hægt að gera ráð fyrir því að allir nefndarmenn séu sérfræðingar í að selja fjármálastofnanir og sannarlega hefði verið gott að fá dýpri og ítarlegri skýringar í fjárlaganefnd af hálfu Bankasýslunnar. Ég vissi t.d. ekki og hafði ekki hugleitt það neitt sérstaklega hvort það væri skynsamlegt að setja gólf um lágmarksfjárfestingar, hvort það ætti að vera 50 milljónir eða 100 milljónir eða hvaða fjárhæð væri yfir höfuð skynsamleg eða hvort það væri yfir höfuð hægt og skynsamlegt að þeir sem keyptu gætu ekki selt fyrr en eftir eitt ár, tvö ár, sex mánuði. Þetta held ég að hefði mátt fara dýpra ofan í í umræðunni og það hefði verið gott að við hefðum fengið ítarlegi upplýsingar hjá þeim sem með málið fara og eru að fara í þetta ferli af því að við erum ekki öll sérfræðingar í því að selja fjármálastofnanir og ekki endilega viss um einu sinni hvaða spurninga hefði verið skynsamlegt að spyrja. Þetta kennir manni alla vega að það er margt sem hægt er að taka úr þessu og maður þarf að ígrunda talsvert betur.

Hvaða framhald verður á þessu veit ég ekki. En ég tek bara undir það að öll umræða var í þá veru, eins og hér hefur margoft komið fram, að um væri að ræða stóra fjárfesta til lengri tíma og þó að það standi einhvers staðar í einni línu að fleiri komist að þá var það einhvern veginn aldrei uppi á borðum af því að kynningin gekk út á það að við værum að leita að fjárfestum til lengri tíma sem væru líka fjárfesta stórt og gætu staðið með bankanum. Þannig að eðli máls samkvæmt er það ástæðan fyrir því að það kemur okkur á óvart hversu margir litlir keyptu, eins og hér hefur verið rakið. Ég tek undir gagnrýni hvað það varðar. Það er ekki eitthvað sem maður hafði séð fyrir sér að yrði gert.

Fram undan er vinna í fjárlaganefnd og vonandi verður staðið við það að við fáum svör á morgun eins og okkur hefur verið lofað, þar sem við nefndarmenn getum gefið okkur tíma til þess að stúdera þau svör sem fram koma þar og getum áttað okkur betur á þessari stöðu og hvort að eitthvað fór úrskeiðis. Við getum gagnrýnt ferlið sjálft og haft ýmsar skoðanir á því öllu saman; niðurstöðunni, verðinu og guð má vita hverju, það geta verið skiptar skoðanir um það, en þarna undir eru sannarlega atriði sem við höfum, held ég, allflest eða öll gagnrýnt. Söluþóknunin t.d., þar sem þetta átti að vera ódýrara og koma betur út fyrir ríkissjóð að gera þetta með þessum hætti og það að einhverjir söluráðgjafar hafi jafnvel keypt eða aðilar nánir þeim eða eitthvað slíkt. Þetta er allt saman eitthvað sem vonandi kemur í ljós í þessum svörum þannig að við getum tekið upplýsta ákvörðun því að það er mjög erfitt að taka upplýsta umræðu um þetta miðað við það sem við höfum í höndunum nú þegar. Það er aldrei gott að standa frammi fyrir því eftir á að finnast það, og ég held að það sé réttmætt, að ferlið hafi með einhverjum hætti brugðist eða þeir sem stýrðu því.