sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég er pínulítið ringlaður einhvern veginn við að hlusta á málflutning stjórnarliða. Fyrir helgi var hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir mjög skýr á því að ákveðnir annmarkar hefðu verið á þessu og að þeir væru Bankasýslumegin. Þeir hefðu með framkvæmdina að gera og framkvæmdin lægi hjá Bankasýslunni. Í raun vísað hún því á bug að fjármálaráðherra hefðu verið mislagðar hendur. Þegar við ræðum þetta í dag er komið allt annað hljóð í strokkinn vegna þess að nú hef ég heyrt tvo nefndarmenn í fjárlaganefnd, bæði Þórarin Inga Pétursson og formann fjárlaganefndar, setja fram mjög harða gagnrýni á upplýsingagjöf gagnvart Alþingi í þessu ferli.
Ef við skoðum 2. gr. laga um sölumeðferð á eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er alveg skýrt að öll samskipti Alþingis við stjórnvöld vegna sölu á banka fara í gegnum ráðherra sjálfan. Ekki Bankasýsluna. Jú, jú, auðvitað líka Bankasýsluna sem umsagnaraðila og til að fá frekari upplýsingar (Forseti hringir.) en það er ráðherra sem leggur fram greinargerðirnar. Hafi verið (Forseti hringir.) ágallar á upplýsingagjöfinni og gagnsæinu hlýtur það alltaf að vera á ábyrgð ráðherra. (Forseti hringir.) Þá er þetta í raun mjög hörð gagnrýni á fjármálaráðherra (Forseti hringir.)sem þingmenn í fjárlaganefnd, stjórnarliðar, eru hér að setja fram.