sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég tek það fram að ég er alveg sammála því að ákveðna hluti í framkvæmdinni þurfum við að mínu mati a.m.k. að kafa betur ofan í og þess vegna sendum við í nefndinni títtnefndar spurningar til Bankasýslunnar. Ég hef heldur ekkert í höndunum sem segir að fjármálaráðherra hafi verið mislagðar hendur, eins og hv. þingmaður tók til orða, og get því ekki sagt honum eitt né neitt um það hvort það hafi verið þannig. Eins og hér hefur verið farið yfir, líka af hv. þingmanni Samfylkingarinnar í þessari umræðu, var ekkert ógagnsæi í pappírunum sem við vorum með í höndunum og það voru skýr fyrirmæli um eftir hverju átti að fara frá fjármálaráðuneytinu og fjármálaráðherra. Mér hefur hins vegar ekki fundist verkefnið ganga eftir eins og við gerðum ráð fyrir miðað við það plagg.