sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Nú er ég bara enn ruglaðri vegna þess að rétt áðan gagnrýndi hv. þingmaður og formaður fjárlaganefndar skort á upplýsingagjöf og að það vantaði upp á gagnsæið og kynningin sem fjárlaganefnd hefði fengið hefði ekki verið í samræmi við það sem síðar varð. Ég gat ekki skilið hana öðruvísi en nú allt í einu segir hún að hún sjái ekki í fljótu bragði að fjármálaráðherra hafi verið mislagðar hendur. Það er fjármálaráðherra sem leggur fram greinargerðina þar sem allar grundvallarupplýsingar um sölumeðferðina eiga að koma fram. Ef þessi upplýsingagjöf brást þá er það ekki á ábyrgð Bankasýslunnar. Þá er það á ábyrgð fjármálaráðherra nema Bankasýslan hafi í einhverjum grundvallaratriðum vikið frá forskrift ráðherra og ráðherra hefur ekki viljað viðurkenna það hér í dag að Bankasýslan hafi gert það. Hann og stjórnarliðar hafa ekki sett fram nein dæmi um það. Ég held að stjórnarliðar verði einhvern veginn að samræma betur málflutning sinn vegna þess að það stendur ekki steinn yfir steini. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að bjóða okkur upp á þetta.