152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[19:57]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ósammála. Ég ætla að leyfa mér að vera ósammála því að einhverjar misvísandi upplýsingar séu á ferðinni. Ég sagði að bréfið sem kom frá fjármálaráðherra hafi verið með skýrum fyrirmælum um hvað ætti að fara fram. Ég sagði í ræðu minni áðan að upplýsingarnar á fundinum, þar sem Bankasýslan fór yfir með nefndinni hvernig fyrirkomulagið ætti að vera, hvers vegna þessi leið væri betri en önnur og hvað í henni fælist, hefðu mátt vera ítarlegri. Aðrir þingmenn hafa komið inn á það, nákvæmlega það. Það er þarna sem ég sagði að ég hefði viljað að við færum betur ofan í málin, hvers vegna hlutirnir væru svona eða hinsegin, af því að ég er ekki sérfræðingur í að selja banka. Ég vissi ekki nákvæmlega upp á tíu hvaða spurninga ég ætti að spyrja og þess vegna hefði upplýsingagjöfin þurfti að vera enn ítarlegri um þessar leiðir, um það, eins og hv. þm. Kristrún Frostadóttir (Forseti hringir.) kom sérstaklega inn á, hvers vegna t.d. var vikið frá því að vera með svona litla fjárfesta.