sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Það er eitt og annað sem við getum ekki gert fyrr en við fáum öll svör, en við getum rekið Bankasýsluna og slegið hana af þrátt fyrir að höfum ekki fengið nein svör. Það er bara svolítið það sem er að gerast hérna. Það er nefnilega þannig að hv. stjórnarþingmenn eru svolítið valkvæðir á það þegar þeir eru að velta fyrir sér ábyrgð. Þegar kemur að ábyrgð Bankasýslunnar þá er hún svo rík og svo mikil að það þarf ekki að rannsaka það og það er hægt að slá hana af. En þegar kemur að ábyrgð ráðherra og öðru þá þurfum við auðvitað að bíða, þá þurfum við að skoða, setja allar heimsins skoðanir af stað áður en farið er í rannsóknarskýrslu Alþingis, eins og krafan hefur verið um. Þannig að mér finnst eiginlega ekki standa steinn yfir steini í þessu. Og þó að Bankasýslan hafi neitað að birta þennan lista þá felst engin sérstök pólitísk ábyrgð í því að hafa tekið fram fyrir hendurnar á Bankasýslunni sem beitti fyrir sig einhverjum bankaleyndarákvæðum. Það er bara sjálfsagt að gera það og við hljótum að vera sammála um það.
Þegar ég nefni hins vegar þetta með pólitíska ábyrgð fjármálaráðherra — þegar Bankasýslan er búin að upplýsa stjórnvöld á hverju stigi nákvæmlega um það sem fram fór og við erum í þeirri stöðu að láta Bankasýsluna fara af því að það sé pólitísk ábyrgð, gildir þá ekki það sama um fjármálaráðherra?