sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir hans andsvar. Ég verð að segja að ég hef fylgst með þessari umræðu og tekið þátt í henni undanfarnar vikur og mér hefur fundist rauði þráðurinn í málflutningi stjórnarandstæðinga vera sá að reyna að klemma fjármálaráðherrann í þessu máli. Stjórnarandstaðan hefur farið pall af palli, horn úr horni og gripið úr loftinu eitt og annað eftir því sem þessari umræðu vindur fram.
Ég ætla hins vegar að segja, vegna spurningar hv. þingmanns um eignarhluti og vegna þeirrar stöðu sem er komin upp, að það væri hörmulegasta niðurstaðan, hv. þingmaður, að ekki tækist að klára sölu Íslandsbanka á þessu kjörtímabili. Það er hins vegar rétt og ég styð það að við höfum sett söluferlið í eðlilega biðstöðu meðan við erum að komast fram úr þessari umræðu. Við verðum að láta rykið setjast, sjá hvað fór úrskeiðis og reyna að meta það með einhverjum hætti. En ég hef ekki gefið mig í því að vonast til að við ljúkum sölu Íslandsbanka á þessu kjörtímabili. Við þurfum sannarlega á því að halda.