sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka þeim sem hér hafa tekið til máls í dag. Þetta er búin að vera áhugaverð umræða. Það væri mikið gaman ef þeir sem mestu réðu væri nú að fylgjast með þessu og taka um borð þær ábendingar sem eru eflaust til góðs og gagns, margar hverjar. Bankar eru mikilvægur hluti af innviðum hvers samfélags og það er áhættustarfsemi sem hefur því miður farið illa oftar en einu sinni á Íslandi, bæði á vegum ríkisins, samanber Landsbankann forðum í „nineties“, og svo eins og þessi blessaða einkavæðing fór nú. Maður hélt eftir hrunið ógurlega að það yrði til nýr kúltúr, nýr siður, það yrði tekin upp einhvers konar háttvísi og siðprýði í þágu viðskiptavinanna. En ég held að þær væntingar hafi því miður ekki gengið eftir sem skyldi. Við höfum fylgst með þjónustugjöldunum frekar hækka á meðan þjónustan minnkar, þ.e. verður sjálfvirkari og meira netbundin, og það er harka í aðgangi og innheimtu gagnvart viðskiptavinunum sjálfum ef þeim verður eitthvað á í messunni, eftir hrunið, það er miklu meiri þumalskrúfa. Þá þarf meira til að menn fái yfir höfuð lán fyrir þaki yfir höfuðið. Þess vegna spyr ég hv. þingmann sem flutti sína ræðu áðan hvort íslenskur almenningur, sem þarf á einhvers konar lánastarfsemi að halda eða bankastarfsemi, sem er ekki eingöngu hagnaðardrifin með þeim gróðavæntingum sem viðgengist hafa undanfarin ár, eigi það ekki skilið í ljósi þess að hann á strangt til tekið einn og hálfan banka eftir að fá einn samfélagsbanka þar sem húsnæðislánin eru ekki endilega verðtryggð, með hæstu ávöxtunarkröfum og belti og axlabönd eru bankans megin. (Forseti hringir.) Veðið í húsnæðinu sé látið duga. Við fáum einn samfélagsbanka út úr þessu (Forseti hringir.) fyrir þá sem ekki hafa efni á öðru en slíkri þjónustu.