sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Það er rétt að byrja á að nefna að ég hef aldrei verið þeirrar skoðunar að ríkið ætti endalaust að eiga þessa banka alla þó að ég hafi gagnrýnt hér áðan með hvaða hætti var staðið að einkavæðingu þeirra fram að þessu. En þetta snýst einmitt um það, aðferðina sem hefur verið notuð og hvers konar fjármálakerfi menn vilja byggja upp, hvers konar fjármálakerfi stjórnvöld vilja koma á hér í landinu því að það var og er að einhverju leyti enn til staðar alveg einstakt tækifæri á Íslandi til að byggja upp sanngjarnara, hagkvæmara og betra fjármálakerfi fyrir allan almenning í landinu og eins fyrirtæki. Við útlistuðum það fyrir kosningarnar 2017, Miðflokkurinn, með hvaða hætti væri hægt að gera þetta. Setja heildarstefnu í þessum málum um hvernig væri hægt að breyta fjármálakerfinu og þar kom einmitt við sögu Landsbankinn í hlutverki — ja, ég veit ekki hvort ég á að nota orðið samfélagsbanki, ég veit ekki hvort ég og hv. þingmaður höfum alveg sama skilning á því orði, en a.m.k. banki með hlutverk fyrir samfélagið, til að stuðla að hagkvæmari, sanngjarnari og betri kjörum fyrir almenning. Aðrir bankar áttu svo að fá önnur hlutverk eða vera seldir með þeim hætti sem útlistað var, þar með talið lögðum við til þá og fyrir síðustu kosningar að allur almenningur fengi til jafns hlutdeild í ríkisbanka. Með öðrum orðum, það yrðu engar spurningar um það hvort einhverjir hefðu fengið að koma að sölu eða einkavæðingu eða ekki. Hver einasti Íslendingur fengi einfaldlega í sinn hlut beint í formi hlutabréfs sem viðkomandi gæti þá ákveðið að selja síðar eða átt áfram og haft beina aðkomu að fjármálakerfinu.