sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er alinn upp í samvinnuhreyfingunni eins og ýmsir vita. Ég hef alltaf haft trú á því félagsformi. Ég held að það sé dálítið hollt og gott að vinna í slíku umhverfi. Og það sem menn eru að reyna að finna nafn á hérna, af hverju köllum við það ekki bara samvinnubanka? Samvinnubanki sem væri kannski með bakhjarl úr, við skulum segja, heilum eða hálfum banka sem þegar er í eigu okkar allra til að geta fjármagnað bústaði venjulegs fólks og þar sem ávöxtunarkrafan væri ekki jafn dramatísk og hún er hjá einkabönkum eða bönkum í einkaeigu þar sem hluthafarnir vilja hæstu mögulegu ávöxtun. Gefum okkur bara eðlilega, heilbrigða ávöxtun og þetta væri banki sem fjárfestir í húsnæði fólks og meðalstórum fyrirtækjum þess vegna með svipuðum hætti og sparisjóðirnir gerðu eða Samvinnubankinn gerði á sínum tíma. Auðvitað er bankarekstur mikil áskorun fyrir hvern þann sem tekur slíkt að sér. Ég held að þau okkar sem fengum allt í einu senda tvöfalda þá upphæð sem við tókum að láni eftir hrunið — auðvitað var þetta gengishrun og skelfilegt í alla staði en einhvern veginn finnst mér að íslenskur almenningur eigi það inni að fá einn slíkan banka út úr þessu fyrir sig. Ég held að við ættum að halda þeirri kröfu til streitu. Það væri bara heilbrigt innlegg fyrir venjulegt fólk, fólk sem er ekki í fjárfestingum og kann ekki á þessi hlutabréfaviðskipti, vinnur bara sína eðlilegu vinnu en þurfti að borga tvisvar sinnum hærri upphæð heldur en var stofnað til á sínum tíma inn á húsnæðislán. Við förum kannski að stefna að því að innleiða betri hátt, betri siði, betra siðferði í þessari tegund þjónustu sem öðru á Íslandi þannig að við höfum eitthvað upp úr þessu þegar upp er staðið.