sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég held að það sé þannig að ráðherra sjálfur eigi ekki að fara yfir hvert og eitt einasta tilboð sem kemur inn. Það var einmitt tilgangurinn með lögunum og með Bankasýslunni að fjarlægja stjórnmálamanninn frá því að taka ákvarðanir um einstaka aðila sem eru að kaupa hluti í eigu ríkisins. Ég get ekki skilið það öðruvísi en svo að það eigi einmitt ekki að vera ráðherrann sem er að skoða þetta. Hann á ekki að vera í þeirri stöðu að velja sérstaklega hverjir það eru sem eru að kaupa heldur þarf einmitt að vera umgjörð um það hvernig við viljum hafa þetta. Við viljum ekki að ráðherrann sé með puttana í hverju og einu tilboði, hann á ekki að vera að vasast í þessu.