sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Eitt af því sem verið er að fara yfir núna er hvort lögum hafi verið fylgt í öllu þessu ferli. Ég get ekki bent á nein dæmi um að ég sjái að þeim hafi ekki verið fylgt, en þetta er eitt af því sem verið er að skoða. Það hefur hins vegar verið bent á ýmislegt í framkvæmdinni sem er virkilega dregið í efa að standist skoðun. Varðandi það hvaða upplýsingar hæstv. fjármálaráðherra hafði eða fékk þá verður hann einn að svara til um það, því að ég hef engar upplýsingar um það og veit ekki annað en það sem hann hefur til að mynda sagt hér í þessum ræðustól.