Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[23:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (ber af sér sakir):

Forseti. Ég kann verulega illa við það, þegar ég sagði það mjög skýrt og greinilega hérna áðan hvað ég meinti með mínum orðum, að þingmaðurinn komi hingað aftur og reyni að snúa eitthvað út úr þeim. Það er einfaldlega verið að ljúga upp á mig með því. Það er einfaldlega verið að mistúlka það sem ég er að segja þrátt fyrir að ég hafi sagt það rosalega skýrt. Þannig að ef hv. þingmaður ætlar áfram að halda þessu fram þá þarf hann að svara fyrir það í forsætisnefnd.