152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[01:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni, mér finnst erfitt að misskilja þessi lög og túlka þau með þeim hætti að þarna sé um að ræða einhverja armslengd, að þetta sé eitthvað langt í burtu frá ráðherranum þegar ábyrgð hans og aðkoma er mjög vel skilgreind. Meira að segja á vef ráðuneytisins er afskaplega góð og skýr mynd sem sýnir nákvæmlega hvernig hlutirnir gerast og að ráðherra tekur ákvörðun í hverju skrefi. Líkt og Bankasýslan hefur margsagt þá fóru þeir bara eftir þessum lögum og voru í samráði við stjórnvöld þegar hvert skref var tekið. Ábyrgð ráðherrans er því skýr.

Hér hefur nokkrum sinnum verið talað um að af því að tilboðin hafi verið svo rosalega mörg, 209 talsins, þá hafi ráðherrann alls ekkert getað tekið afstöðu til þeirra. Ég get alveg séð fyrir mér að starfsmenn Bankasýslunnar hafi flokkað upp í hendurnar á ráðherranum rökstuðning fyrir hverjum flokki fyrir sig. Það gæti verið svona: Í þessum flokki hér eru pabbi þinn og frændur og þeir eru að bjóða svona margar milljónir. Í öðrum flokki eru menn sem hafa reynslu af bankarekstri. Þeir njóta að vísu ekki mikils trausts í þeim efnum en þeir eru hér. Svo eru þeir sem sjá um sölumeðferðina, þeir eru í þessum flokki. Og erlendi fjárfestingarsjóðurinn sem fékk afslátt í síðasta útboði, seldi strax og græddi vel, (Forseti hringir.) eigum við ekki að leyfa þeim að taka snúning að nýju? Það eru ýmsar leiðir til að vinna skjölin upp í hendurnar (Forseti hringir.) á ráðherranum, hann hefði getað áttað sig mjög vel á því hvað stóð til.