sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sem var býsna málefnaleg, ólíkt ýmsum sem við höfum heyrt hér í kvöld. Mig langar að spyrja: Nú er það þannig að hv. þingmaður skrifaði grein þegar umræðan var að fara af stað af miklum þunga um þetta mál og sagði, með leyfi forseta: Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki þekkingu á þessu fyrirkomulagi en greinargerðin og heimsókn frá Bankasýslunni og öðrum gestum fékk mig til að trúa því að þetta væri gott fyrirkomulag. Nú hefur komið fram í máli ýmissa þingmanna hér í dag, og jafnvel hjá hæstv. fjármálaráðherra sjálfum, að það hafi verið annmarkar á upplýsingagjöf og skortur á gagnsæi. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvar hún telji að þessir annmarkar birtist helst þegar kemur að undirbúningi og framkvæmd sölunnar og hvort það hafi þá skort á upplýsingar í þessari greinargerð sem fjárlaganefnd fékk við undirbúning sölunnar.