sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og gaman að heyra hvað hann hefur góð tengsl inn í VG og baklandið þar. Mér finnst vont að við stöndum í þeirri umræðu. Mér finnst vondar þær sögur sem hafa verið á sveimi sem draga úr trúverðugleika þessa ferlis. Þess vegna finnst mér ofboðslega mikilvægt að við fáum svör við þessum spurningum hið fyrsta og að við veltum við öllum steinum. Þess vegna sagði ég líka í enda ræðu minnar: Ég vona að niðurstaðan verði sú að við fáum úttekt á þessu frá Ríkisendurskoðun og það komi í ljós að í öllum meginatriðum hafi þetta gengið vel og þar sem einhvers staðar voru annmarkar sé farið í að laga það. Ég hef því enn væntingar til þess að við getum losað um meira eignarhald í Íslandsbanka en ég átta mig líka á því að það verður ekki gert fyrr en þessu er lokið og væntanlega verður það ekki gert nema á opnum markaði, þ.e. í almennu útboði þar sem allir geta tekið þátt. Það mun væntanlega þýða að við munum þurfa að selja hægar, meitla minni upphæð inn á markaðinn á hverjum tíma til að hafa ekki áhrif á verðið. (Forseti hringir.) En það er nákvæmlega ástæðan fyrir því að það var ekki gert núna, þetta var talin leið til að hífa upp verðið og fá meiri verðmæti fyrir þessa ríkiseign.