sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Þetta er nefnilega nákvæmlega málið. Við erum komin í mjög erfiða stöðu og sú erfiða staða blasir við okkur og er sönn og raunveruleikinn vegna þess að það tókst illa til. Við erum í þeirri stöðu að kaupendalistinn var eins og hann var, það er spurning hvort eðlilegt hafi verið að fjármálaráðherra hafi gengið frá sölunni þegar ættingjar hans voru meðal kaupenda, að söluráðgjafar hafi verið að kaupa sjálfir, sem þýðir þá að þeir eru á launum við að selja sjálfum sér eign ríkisins með afslætti. Við erum að borga þeim fyrir það að þeir geti keypt eign ríkisins með afslætti og grætt. Allir þessir þættir munu gera það að verkum að þjóðin mun ekki treysta því að það verði hægt að selja þetta, alveg sama hvort við erum með Bankasýsluna eða finnum eitthvert annað fyrirkomulag á því. Það held ég að sé algerlega einboðið. Það er einfaldlega þannig að það verður grafskrift Sjálfstæðisflokksins í þessu máli að hafa klúðrað einkavæðingu þannig að það verði ekki hægt að ganga meira á það að selja eignirnar. (Forseti hringir.)
Eitt til viðbótar. Hv. þingmaður talaði um að hún ætti fullt af útistandandi spurningum til Bankasýslunnar. Mig langar að vita: Eru engar útistandandi spurningar á ráðherra?