sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég hef þessar tvær til þrjár spurningar útistandandi á Bankasýsluna sem ég ætlaði að fá svar við í morgun og mun spyrja um á fundi okkar á miðvikudaginn. Þegar ég talaði um fjölda útistandandi spurninga til Bankasýslunnar var ég að vísa í þann lista sem fjárlaganefnd sendi til Bankasýslunnar. Eitthvað af þeim á reyndar að litlu leyti heima hjá fjármálaráðuneytinu en ekki beint hjá fjármálaráðherra, nei. En eins og ég ítrekaði áðan: Fjármálaráðherra ber ábyrgð á öllu ferlinu. Þá þurfum við líka að muna hver markmiðin með sölunni voru og hvort þau hafi nást. Og alveg eins og ég las hér áðan þá hafa öll stóru markmiðin náðst. Það breytir ekki þeirri staðreynd að ég er alveg jafn hundfúl yfir því og hv. þingmaður, það á auðvitað ekki að vera þannig, að við borgum einhverjum söluaðilum 700 milljónir fyrir að selja hlut í bankanum og að þeir séu sjálfir að kaupa. Það er algjörlega óásættanlegt í mínum huga og ég geri ráð fyrir því að Bankasýslan muni bregðast við því ef þetta er raunverulega satt og rétt.
En hv. þingmaður er farinn að tala svolítið um að þessum leiðangri sé lokið. (Forseti hringir.) Ég hvet hv. þingmann til þess að við sameinumst um (Forseti hringir.) að velta við öllum steinum, auka trúverðugleikann úti í samfélaginu á því umhverfi (Forseti hringir.) sem við höfum byggt hér upp á Alþingi þannig að við getum tryggt að við losum um fleiri fjármuni til að nýta í önnur mikilvæg verkefni fyrir okkur öll.