152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[01:57]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður skautaði snyrtilega fram hjá markmiðinu um að efla virka og eðlilega samkeppni. Jú, hún nefndi orðið samkeppni en að hvaða leyti var leitast við að efla virka samkeppni með þennan þátt sölunnar? Hver var árangur ríkisstjórnarinnar í þessum fasa hvað það markmið varðar? Við höfum álit Samkeppniseftirlitsins á því hver staðan er á íslenskum bankamarkaði varðandi samkeppni. Við höfum ákveðinn veruleika viðskiptamanna íslensku bankanna varðandi samkeppnina. Ég myndi því vilja fá það fram, af því að það er markmið með sölunni, sérstakt markmið í lögunum um sölumeðferðina, að ævinlega eigi að kappkosta að efla virka samkeppni á fjármálamarkaði: Hvar sér þess stað í þessum sölufasa?