152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[02:27]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil bara undirstrika að mér finnst þessi umræða hafa verið góð í dag, mikilvæg, þó að ég hafi vissulega saknað annarra ráðherra, ekki síst úr ráðherranefnd um efnahagsmál. Það dugar að mínu mati ekki að ræða þetta risastóra mál og klára það núna að nóttu og eiga síðan hálftíma á morgun í sérstakri umræðu og telja þá að búið sé að afgreiða málið og síðan einhverjar tvær mínútur í óundirbúnum fyrirspurnum. Það þarf að upplýsa og það þarf að svara mun fleiri spurningum en hefur verið svarað hér í dag. Þar ber sérstaklega að nefna að mér finnst við ekki hafa fengið skýr svör um þann ágreining sem greinilega hefur verið innan ráðherranefndar um efnahagsmál um það hvernig standa eigi að þessari sölu. Menningar- og viðskiptaráðherra hefur augljóslega sett fram sínar athugasemdir og þeim athugasemdum hefur ekki verið svarað. Við höfum jafnvel ekki fengið að vita hvar þær athugasemdir hafa verið ræddar, hvort þær hafi verið brotnar til mergjar og hvort átt hafi sér stað málefnaleg umræða um þær athugasemdir.

Ég hef líka viljað draga það fram og undirstrika að ríkisstjórnin og ráðherrar í ríkisstjórn geta ekki afsalað sér stjórnsýslulegri ábyrgð og sett hana yfir á Bankasýslu ríkisins. Það er ekki hægt. Bankasýsla ríkisins er sjálfstæð ríkisstofnun. Þó að það sé sagt að hún sé sérstök samkvæmt lögum þá lýtur hún öllum þeim skilyrðum sem falla til og heyra undir opinberar stofnanir. Ráðherra skipar stjórn stofnunarinnar og það er alveg ljóst að þegar hann fær tillögur frá Bankasýslu ríkisins — og vel að merkja, Bankasýsla ríkisins segist aldrei í öllu þessu ferli hafa fengið neinar athugasemdir frá ráðherrum í ríkisstjórn varðandi þeirra tillögur, það eina var þetta með listann. Það er bara sjálfgefið að slíkur listi sé gefinn upp. Menn eiga ekki að vera að slá sér á brjóst og fullyrða að það sé einhver pólitík. Það er bara hluti af opnu gegnsæju samfélagi, upplýsingasamfélagi, ekki síst í svona stórum og miklum málum, að slíkir listar um kaupendur liggi fyrir: Það er eðlileg, einföld, skýr krafa.

En ráðherrar geta ekki undanskilið sig þeirri ábyrgð sem fylgir því að taka ákvörðun sem þeir þurfa að gera lögum samkvæmt, að taka ákvörðun í þessu máli. Því fylgir ákveðin rannsóknarskylda, skylda samkvæmt stjórnsýslulögum, að meta það, setja fram spurningar, reyna að draga fram hvað felst í þeirri ákvörðun að skrifa undir þær tillögur sem Bankasýsla ríkisins hefur komið með. Þetta verður að fara yfir og þetta verður að skoða. Ég er ekki að segja að þetta hafi verið gert vitandi vits, að menn hafi ætlað að fara í einhverja snúninga sjálfir. Ég er ekki á þeirri skoðun. Ég tel einfaldlega að hér hafi mistök átt sér stað. Ég vil ætla mönnum það og þá verða menn einfaldlega að viðurkenna það.

Síðan er það hitt sem ég hef saknað í þessari umræðu. Eðlilega er mikill fókus á það hvernig framkvæmdin fór fram, af því að hún hefur dregið úr trausti á þessari sölu, það mikið að ríkisstjórnin sjálf hefur slaufað frekari sölu og mér sýnist þessi ríkisstjórn ekki vera burðug til að halda áfram með sölu á hlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. En það er ekki síður hitt stóra atriðið sem er samkeppnin. Við búum við fákeppni á fjármálamarkaði. Bæði OECD og Samkeppniseftirlitið hafa dregið fram að við erum með eitt dýrasta bankakerfi, fjármálakerfi, í Evrópu og þótt víðar væri leitað. — 30 sekúndur duga ekki til að ræða um galla íslensku krónunnar. Það er risastór þáttur í því að við erum með þetta dýra fjármálakerfi. Það er risastór þáttur í því af hverju við fáum ekki erlenda fjárfesta öðruvísi en að þeir sjái bara einhvern einhverja skortsölu eða snúningsmöguleika og eru síðan farnir út korteri síðar.

Þetta er umræða sem ég hefði viljað að við tækjum hér í þessari stóru mynd en við fáum enga tóna. Við fáum ekki einu sinni tækifæri eða tíma, hvað þá skoðanir ráðherra um hvernig við getum farið í það verkefni að tryggja samkeppni á fjármálamarkaði, ýta út fákeppninni. Það gerist ekki eitt og sér (Forseti hringir.) með því að breyta um eignarhald, að færa eignarhaldið á bönkunum frá ríkinu yfir til lífeyrissjóðanna sem eiga enn sem komið er (Forseti hringir.) stóran part af vinnumarkaði eða fyrirtækjum á markaði. Þetta eru hlutir sem við þurfum að fara mun betur yfir. Ég vil geta þess við forseta að Viðreisn mun fylgja því eftir að þessi mál verði rædd í þinginu í vikunni.