störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á verndun og varðveislu skipa. Eitt merkilegasta skip sem möguleiki er á að bjarga er fyrsta varðskip og hafrannsóknaskip Íslendinga, María Júlía, sem var smíðað árið 1950 og á sér merka sögu en hefur legið undanfarin ár í Ísafjarðarhöfn og má muna sinn fífil fegri. Byggðasafn Vestfjarða og Minjasafnið á Hnjóti keyptu skipið árið 2003 en þá átti að selja það til Suður-Afríku. Það naut varðveislu og stuðnings opinberra aðila fyrstu árin en hefur legið í svokallaðri öndunarvél í Ísafjarðarhöfn síðan 2014 og fer hver að verða síðastur að bjarga þessu menningarverðmæti frá glötun. Ég tel það vera mikilvægt að sýna sögu okkar og fórnfýsi fyrri kynslóða virðingu og gera skipið upp og fá því nýtt hlutverk í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Það gæti nýst í ferðaþjónustu, sem skólaskip eða í einhvers lags opinberri móttöku. Hollvinasamtök um Maríu Júlíu voru stofnuð á síðasta ári og það voru Háskólasetur Vestfjarða, Landhelgisgæslan, Hafrannsóknastofnun og fleiri velunnarar sem stóðu að því og nú er unnið að því að leita stuðnings við þetta góða verkefni hjá ráðherrum og Alþingi svo hægt sé að fjármagna nauðsynlegar viðgerðir til að bjarga megi þessu krúnudjásni, að ég tel, sjósafngripa um haf- og strandmenningu 20. aldar. Í kjölfar fjölda sjóslysa á Vestfjörðum þá fór af stað söfnun á sínum tíma fyrir björgunarskipi og það voru fyrst og fremst slysavarnadeildir og konur á Vestfjörðum sem söfnuðu fyrir einum þriðja hluta verðs skipsins og hjónin María Júlía og Guðmundur létu arf sinn renna til að smíða það. Þetta skip aðstoðaði fjölda manns og bjargaði frá drukknun á sínum tíma og ég tel að okkar samfélag sé það ríkt að það eigi að sjá sóma sinn í því að bjarga þessum miklum verðmætum og mun ég leggja mig fram um að vinna að því verkefni með fyrirspurnum til ráðherra og fleira.