152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að nota tækifærið og fjalla aðeins um bjarta stöðu í heimabænum mínum, Reykjanesbæ. Reykjanesbær er fjórða fjölmennasta bæjarfélaga landsins og eins og flestum er kunnugt var það eitt skuldugasta sveitarfélag landsins um árabil. Árið 2014 stóðu skuldaviðmið samstæðu Reykjanesbæjar í 228% sem var einna hæst á landinu. Hrakfarir hafa því miður einkennt atvinnumál á svæðinu um langt skeið og svo tók steininn úr þegar fordæmalaust ástand skapaðist á Covid-tímum. Þegar faraldurinn stóð sem hæst var fjórði hver íbúi í Reykjanesbæ atvinnulaus — fjórði hver íbúi — og því nauðsynlegt að bregðast við með festu og skýrum markmiðum. Reykjanesbær réðst í viðamikil átaksverkefni með Vinnumálastofnun til að fjölga störfum. Farið var í námsmannaátak og sérstök áhersla var lögð á úrræðið Hefjum störf. Sjálfur lagði ég fram tillögur um fyrstu útfærslu á því úrræði við stjórnvöld og verkalýðshreyfinguna í upphafi faraldursins. Aðgerðir stjórnvalda skiptu einnig lykilmáli í vegferð okkar í gegnum þennan dimma dal. Gríðarlegur viðsnúningur í rekstri bæjarfélagsins á undanförnum árum tryggði að bæjarfélagið gat staðið af sér storminn. Samkvæmt ársreikningi 2021 er rekstrarniðurstaða Reykjanesbæjar jákvæð. Þar kemur til að mestu endurfjármögnun skulda en einnig góður rekstur. Skuldaviðmiðið er nú komið í 120%, virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að árangur sem þessi í ljósi aðstæðna er fáheyrður. Ég vil við þetta tækifæri þakka sérstaklega starfsmönnum og stjórnendum Reykjanesbæjar en síðast en ekki síst íbúunum. Það eru þeir sem hafa leitt okkur í gegnum þetta, okkar góða fólk í Reykjanesbæ, og gert það að verkum að nú er framtíðin enn bjartari í sveitarfélaginu.