152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Á sama tíma og ríkisstjórnin er að selja banka þá kemur fram skýrsla um kvíða, þunglyndi og streitu hjá aðstandendum aldraðra. Kvíði, þunglyndi, streita og svefnleysi er meðal þess sem hrjáir aðstandendur veikra aldraðra, samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Álagið gengur iðulega mjög nærri heilsu þeirra. Niðurstöðurnar eru sláandi, að sögn hjúkrunarfræðingsins sem gerði rannsóknina. Fjallað verður um úrræðaleysi í málefnum veikra aldraðra og álag á aðstandendur í Kveik í kvöld. Hreppaflutningar, fatlaður einstaklingur fluttur út í sveit þar sem hann er settur í stofufangelsi. Þetta er ekkert annað en andleg og líkamleg pyndingastarfsemi. 200 einstaklingar undir 67 ára eru vistaðir á hjúkrunarheimili bara vegna þess að þeir eru öryrkjar og fatlaðir. Eftirspurn og þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi eykst ár frá ári og bið eftir þjónustu er almennt of löng og ekki í samræmi við markmið stjórnvalda. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Við sjáum nú mjög miklar hækkanir á matvöru og okurleigu. En hvað eru Danir gera? 90.000 kr. eingreiðslu eru Danir að greiða til lífeyrisþega vegna hækkandi verðlags, 90.000 kr. skattlausa eingreiðslu. Hvað myndi það kosta ef við myndum greiða 8.000 ellilífeyrisþegum 90.000 kr. eingreiðslu? 720 milljónir, það sama og Bankasýslugæjarnir fá fyrir smá vinnu. Ef við tökum allan þann kostnað sem farið hefur í sölu bankanna, 2,1 milljarð, þá gætum við gefið 24.000 manns þetta. En hafa eldri borgarar á Íslandi fengið eitthvað frá ríkisstjórninni? Nei. Þeirra tími er ekki kominn og hann kemur aldrei í tíð þessarar ríkisstjórnar vegna þess að ríkisstjórnin er upptekin við að fæða og gera þá ríku ríkari.