barnaverndarlög.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að lesa hér upp úr frumvarpinu:
„Af ýmsum ástæðum hafi gengið hægar en vonir stóðu til að innleiða og undirbúa breytingarnar. Þar spili ýmis atriði inn, þar á meðal kosningar til Alþingis, breytt skipan ráðuneyta og tilfærsla málaflokka innan Stjórnarráðs Íslands sem og innleiðing nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.“
Þetta stendur hér og ég skil það sem svo að það sé ástæðan fyrir því að ekki hefur verið farið í það að leggja niður pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir. Ég get ekki skilið það öðruvísi vegna þess að þetta eru einu upplýsingarnar sem ég hef um þetta. Það er einnig minnst á Covid-19 faraldurinn en það er eiginlega bara það sem er sagt hér. Það finnst mér frekar alvarlegt þar sem þetta er eitthvað sem ætti að vera í forgangi. Það að pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir séu enn þá við lýði er furðulegt fyrir mér, að það sé verið að seinka því og það ekki sett í nógu mikinn forgang að tryggja að þessi málaflokkur sé mjög vel unninn.
Við ræddum aðeins annan fasa. Hæstv. ráðherra sagði áðan að annar fasi væri úrræði. Ég velti fyrir mér hvernig komist var að þeirri niðurstöðu að annar fasi væri úrræði. Mér finnst það mjög áhugavert vegna þess að þegar ég er ekki hér sem varaþingmaður þá starfa ég sem barnaverndarstarfsmaður og úrræði er það sem vantar, það er skortur á úrræðum. Ég fagna því mjög að það sé samþætting þjónustu. Ég er alls ekki á móti því og finnst bara mjög flott að það sé sett í lög en að úrræðin séu ekki í forgangi og það sé ekki í forgangi að stytta biðlista, að veita úrræði innan sveitarfélaga, í nærumhverfi, í skólum, að það sé ekki í forgangi og það sé í öðrum fasa finnst mér umhugsunarvert. Hvernig eru ákvarðanir eins og þær teknar? Hvernig er forgangsraðað? Hvað er mest aðkallandi verkefnið á hverjum tíma? Eins og það snýr að mér hefur breytt skipan ráðuneyta og tilfærsla málaflokka verið í meiri forgangi en að leggja niður pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir og spá í úrræði fyrir öll börn sem eru á biðlistum úti um allan bæ. Eða þá að úrræðin eru bara ekki til. Það er einfaldlega rosa mikið af úrræðum sem eru ekki í boði á Íslandi. Það eru ekki til úrræði fyrir börn og það veit enginn hvað á að gera. Fólk sem vinnur innan barnaverndarkerfisins, á þjónustumiðstöðvum og er að vinna með þessum börnum allan daginn — ég held að það geti allir sammælst um að það sem skortir ekki er fólk til að beina í úrræði og það er það sem samþætting þjónustunnar fjallar líka um. Eins og ég segi er ég mjög sammála því að samþætta þurfi þjónustuna en mér finnst að það hefði þurft að taka úrræðin í fyrsta fasa, ekki öðrum fasa.
Ég vona að þessi annar fasi gangi hratt og vel fyrir sig og að það verði í alvörunni sett svakalegt fjármagn og mikill kraftur í að búa til úrræði, ekki bara fyrir börn heldur fyrir fjölskyldur, fyrir foreldra, fyrir þá einstaklinga sem eru viðkvæmustu einstaklingar landsins, fólk sem treystir á sveitarfélög eða ríkið til að hjálpa sér. Þegar það er komið í aðstæður sem eru erfiðar og óviðráðanlegar þá eigum við að vera með úrræði fyrir þetta fólk í forgangi, fyrir þessa einstaklinga sem gætu verið ég eða hver sem er hér inni. Það er enginn undanskilinn því að þurfa einhvern tímann aðstoð frá sveitarfélögum eða ríkinu. Þess vegna get ég ekki skilið hvernig úrræði geta verið í öðrum fasa þar sem biðlistarnir og úrræðaleysið er svo svakalegt. Það skiptir ekki máli hvort þú ert á höfuðborgarsvæðinu eða hvar þú ert, það eru ekki til úrræði.
Við höfum talað um fjármagn og miklar breytingar eins og Barna- og fjölskyldustofu og allt sem er að gerast og þetta kostar allt mikla peninga. Nú á að fara að skipa málastjóra og það verða margir málastjórar og það á að ráða í það. Það er þyngra en tárum tekur að það sé allt þetta rosalega góða fólk sem vinnur innan barnaverndarkerfisins, innan sveitarfélaga, í velferðarkerfinu þar og einnig hjá ríkinu, en það skortir fókus á að úrræði eru það sem við þurfum fyrst og fremst. Við erum með alla þessa biðlista og alla þessa umræðu um biðlista, hvar sem er, í nærumhverfi, hjá ríkinu, hjá sveitarfélögunum, það skiptir ekki máli hvar, en það er samt eins og það sé ekki nóg. Spáum í líf barns og í einu ári fyrir barn sem er fjögurra til fimma ára. Hversu mikið er eitt ár fyrir þetta barn í þroskaferli þess? Það er rosalega mikið. Og það er frekar einblínt á málastjóra sem, eins og ég segi aftur, mér finnst að þurfi en mér finnst að ætti ekki að vera í forgangi. Það sem ætti að vera í forgangi eru úrræði, fleiri úrræði, fjölbreyttari úrræði. Það á alltaf að spá fyrst og fremst í úrræði og síðan í hinum hlutanum.
Ég fagna því þó að verið sé að leggja niður pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir. Það er verið að gera alls konar hluti í barnaverndarkerfinu en mér finnst að taka þurfi mið af því sem er mest aðkallandi á hverjum tíma fyrir sig. Geðheilbrigðiskerfið — og tölum um alla þjónustu; talmeinafræðinga, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, bara allt sem ykkur dettur í hug. Það er bið til þeirra. Þú kemst ekki að strax. Hvað með sérhæfðari úrræði, t.d. úrræði fyrir fólk sem beitir ofbeldi, úrræði fyrir fólk sem þarf aðstoð með uppeldi, með alls konar hluti, með kvíða, þunglyndi, allt þetta? Það er bið. Er sálfræðiþjónusta niðurgreidd? Nei. Þessar fjölskyldur hafa ekkert. Fjölskyldur sem eru innan barnabótakerfisins og fá þjónustu frá barnabótakerfinu hafa oft ekki fjárhagslegt bolmagn til að geta nýtt úrræðin, eins og t.d. að fara til sálfræðings á stofu. Það kostar sirka 20.000 kr. hver tími og þú ættir að fara svona 12 sinnum ef þú svarar meðferð vel. Fyrir börn að fara kannski einu sinni í viku eru það 80.000 á mánuði. Það getur það enginn. Og hvað gerist þá? Þá er það þannig að börnin bíða og bíða, vegna þess að það er ekki nógu mikið af fagfólki sem getur sinnt þeim innan ríkisins eða innan sveitarfélaganna. Svona löng bið fyrir barn hefur miklu meiri áhrif en t.d. fyrir fullorðna manneskju vegna þess að eitt ár í lífi barns er örugglega eins og tíu ár í lífi manneskju á milli fertugs og fimmtugs. Eitt ár skiptir rosalega miklu máli. Þess vegna skil ég ekki af hverju öll áherslan er ekki á úrræði og síðan komi allt hitt.
Ég get ekki sagt það nógu oft og það vita það allir að biðlistarnir eru alls staðar. Það vita allir að það þarf miklu meiri þjónustu í nærumhverfinu. Það þurfa að vera fleiri fagstéttir innan skóla, innan leikskóla. Það þurfa að vera fagstéttir í nærumhverfi til að grípa og vera með samráð og vera með teymisvinnu í kringum hverja og eina fjölskyldu. Það er kannski það sem að einhverju leyti er verið að reyna að gera með málastjórunum en það þarf samt svo miklu meira. Það sem ég myndi vilja sjá er að öll sú vinna og allt það sem er verið að setja í samþættingu þjónustunnar væri sett í úrræði. Mér finnst það bara raunhæft. Eða mér finnst það ekki raunhæft heldur nauðsynlegt og það þarf að gerast strax vegna þess að hvert einasta ár sem líður erum við með börn á biðlistum úti um allan bæ eftir talmeinafræðingum, eftir sálfræðingum, eftir einhvers konar úrræðum innan sveitarfélaga, líka úrræðum sem eru ekki til þar sem allir yppa bara öxlum og segja: Ég er ekki með úrræði fyrir þessa fjölskyldu. Við erum ekki með sérhæfð úrræði fyrir þessa fjölskyldu. Af hverju ekki? Bara vegna þess að þau eru ekki til á Íslandi. Eigum við þá að fara að senda fjölskyldur til Svíþjóðar eða? Þetta er það sem á að vera í forgangi. Þetta er það sem mun hjálpa börnunum okkar og fjölskyldunum okkar sem við erum að sinna út í lífið.
Ég veit ekki hvað ég á að segja meira vegna þess að þetta er svo skýrt fyrir mér og skýrt, held ég, fyrir flestum öðrum. Við þurfum að stytta biðlista. Við þurfum að vera með fleiri úrræði og þau þurfa að vera fjölbreyttari. Við þurfum að mæta einstaklingnum þar sem hann er. Við þurfum að vera með sérhæfðari úrræði. En við erum ekki að gera það. En ókei, það er annar fasi þar sem úrræðin verða og ég er mjög spennt að sjá hvað verður þar. Ég vona að það komi hratt og örugglega og það verði mjög mikið samráð við fagfólk, við sveitarfélögin, við ríkið, bara við alla, sérstaklega notendur, foreldra, því að það er fólkið sem á eftir að nota úrræðin okkar. Það er fólkið sem skiptir mestu máli til þess að úrræði virki. Ég segi bara: Úrræði er það sem ætti að vera í forgangi. Það er ekki í forgangi. Ég vona að það verði í forgangi. Ég vona að pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir verði lagðar niður sem fyrst og allt fjármagn og allur kraftur verði settur í það að sinna þessum málaflokki vel. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)