barnaverndarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Annað sem mig langar að ræða við hv. þingmann, og er eiginlega að misnota aðstöðu mína, er starf barnaverndarnefnda og aðkomu barnaverndarnefndar þegar annað foreldrið á í deilum við hitt foreldrið og þá ákvörðun sem einhvers staðar í ferlinu var tekin um að veita börnum þeirra ekki vernd. Það er ekki gripið inn í þegar barn er í þeim aðstæðum að fá t.d. ekki að fara í skóla þrátt fyrir endalausar tilkynningar um slíkt. Barnavernd grípur ekki inn í. Barni er haldið frá skóla, haldið frá tómstundum, haldið frá hinu foreldrinu og fjölskyldum og það virðist vera einhver lenska hjá barnavernd að stíga ekki inn í slíkt. Þá veltir maður fyrir sér hvernig við getum tekið á því. Eiga ekki öll börn að njóta verndar barnaverndar, líka börn þar sem foreldrar eru í deilu eða annað foreldrið í deilu?