152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[15:22]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég kannski byrja á því að taka undir það sem kom fram hjá ráðherra í framsögu, hversu mikilvægt er að það sé vandað til verka við innleiðingu á breytingum á framkvæmd jafn mikilvægra laga og hér um ræðir til þess að tryggja það að einhverjar breytingar á skipulagi komi ekki niður á meðferð mála þeirra barna sem lögin eiga að vernda. Þess vegna er bara virðingarvert að heyra ráðherrann lýsa því hér í pontu hversu mikið forgangsmál þetta er þegar hann segir að þetta sé í raun og veru eina málið sem hann leggi áherslu á að verði klárað af þeim málum sem hann hefur lagt fyrir þingið. Þrátt fyrir að þetta sé mál sem ekki var á þingmálaskrá er því að sjálfsögðu hleypt fram fyrir þá röð. En við skulum ekki gleyma kannski stærra markmiðinu sem hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir kom svo ágætlega inn á, sem er það að koma framkvæmd barnaverndarmála í betri farveg, að segja skilið við pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir, fara að vinna hlutina faglegar og síðan í framhaldinu að fara að fjármagna úrræði til þess að geta náð almennilega utan um rót þess vanda sem barnaverndarmál spretta upp úr.

En talandi um forgangsröðun þá hefur ráðherra farið ágætlega yfir að honum barst ekki ábending frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga fyrr en 25. febrúar þess efnis að nauðsynlegt væri að fresta gildistöku nýrra ákvæða um barnaverndarþjónustu og umdæmisráð barnaverndar. Mánuði síðar kemur málið til þings á síðasta framlagningardegi og birtist hér í skjalasafni 1. apríl. Það er síðan viku síðar sem það kemur á dagskrá í fyrsta sinn, 8. apríl birtist það á dagskrá. Dagana á milli höfðu verið umræður um fjármálaáætlun, eins og fyrirséð var, þannig að það var ljóst að málið kæmist aldrei á dagskrá fyrr en að þeirri umræðu lokinni. Þannig 8. apríl — það hefði eiginlega ekki mátt búast við því nokkuð fyrr á dagskrá. En hvað segir það um pólitíska forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og verkstjóra hennar hér á þingi, forseta Alþingis, að málið hafi á þeim tímapunkti fengið 17. sæti á dagskránni? Það voru 17. mál á dagskrá sem forseti lagði hér fyrir þingið og komst eðlilega ekki til umræðu. Það voru 16 mál á undan og við náðum ekki einu sinni að klára þau öll. Síðan kom hið fyrirséða tveggja vikna páskahlé þannig að ef forseti Alþingis hefði hlustað á ráðherrann varðandi það hversu mikið forgangsmál þetta væri, hversu brýnt það væri að ná þessu máli í höfn fyrir sveitarstjórnarkosningar 14. maí næstkomandi, þá stæðum við ekki hér í dag að ræða þetta mál heldur hefði forseti einfaldlega forgangsraðað því þannig að við hefðum rætt það fyrir páska. En svo var ekki og það segir nokkuð um forgangsröðun vegna þess að nú stöndum við á fjórða síðasta þingfundardegi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem er tímapunkturinn sem er miðað við í þessu frumvarpi. Það segir sig nánast sjálft að málið verður ekki klárað á þeim tímapunkti enda höfum við ákveðið svigrúm, nýjar sveitarstjórnir taka ekki við fyrr en 15 dögum eftir kosningar samkvæmt sveitarstjórnarlögum, og þess vegna bind ég vonir við að velferðarnefnd nái að vinna vel úr þessu máli þannig að við getum gert það að lögum ekki seinna en fyrstu vikuna eftir kosningar um miðjan maí.

En af hverju er varhugavert að klára mál sem er sagt vera einföld frestun á framkvæmd? Af hverju er varhugavert að klára það á tæpri viku í þinglegri meðferð? Jú, það er vegna þess að þetta er ekkert bara einföld frestun. Eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir kom inn á í sinni ræðu þá afgreiðum við oft og tíðum einfaldar frestanir í lagaformi hér í þingsal en þær snúast yfirleitt um það að dagsetningu er breytt í aðra dagsetningu síðar. Því er ekki að skipta hér heldur þarf að vefa sig í gegnum öll barnaverndarlögin. Þetta er að mér sýnist á áttunda tug greina sem snert er á og með ólíkum hætti. Í sumum greinum er gildistöku einfaldlega frestað til 1. janúar 2023 en svo eru aðrar greinar þar sem barnaverndarnefndum sem eru þegar starfandi eru falin verkefni sem barnaverndarþjónustu og umdæmisráðum eru falin, þær greinar eru taldar upp og eru 66 talsins. Síðan er barnaverndarnefndum falið að úrskurða um ráðstafanir samkvæmt enn öðrum greinum þannig að flækjustigið á þessari frestun er mun meira en við eigum að venjast. Ég ætla nú ekkert að vera leiðinlegur við ráðuneytin en þau eiga það til að gera mistök eins og við öll hin. Það er bara eðlilegt. Við þekkjum nú bara frekar nærtæk dæmi. Tveir ráðherrar Framsóknarflokksins hafa afturkallað frumvörp á þessu þingi, bara eftir áramót. Heilbrigðisráðherra afturkallaði frumvarp sitt um beitingu nauðungar þar sem í ljós kom að nauðsynlegt samráð hafði ekki verið viðhaft og hæstv. innviðaráðherra afturkallaði frumvarp sitt um leigubílaakstur vegna þess að eitthvað vantaði inn í það. Það hafði bara gleymst að láta það inn í frumvarpið. Hvað gerist ef eitthvað gleymist í þessu frumvarpi? Jú, það kemur niður á börnunum sem er svo mikilvægt að við stöndum vörð um með þessum lögum.

Ég ætlaði nú ekki einu sinni að kveðja mér hljóðs en ég freistaðist til að prófa og rekja mig aðeins í gegnum breytingarnar sem eiga sér stað, sérstaklega varðandi tvær greinar. Hér nefndi hv. þm. Helga Vala Helgadóttir að þar sem hún væri löglærð þá sundlaði hana ekki endilega þó að hún færi í gegnum svona flókinn texta. En mig langar aðeins, frú forseti, og það væri nú gaman ef það væri einhver úr velferðarnefnd í salnum til að fara yfir þetta með okkur en vonandi taka þau þetta til skoðunar í nefndinni, þau eru kannski að horfa á skjánum, en mig langar aðeins að benda á hvernig millivísanir í lögunum geta orðið þess valdandi að þessar breytingar láti eitthvað falla á milli skips og bryggju. Í lögunum erum við með 13. gr. og 3. mgr. hennar snýst um það að umdæmisráð taki ákveðnar ákvarðanir með úrskurði. Þar er í 1. tölulið vísað til 26. gr. laganna, um beitingu úrræða án samþykkis foreldra. Það sem er síðan gert í frumvarpinu er að þessi 3. mgr. 13. gr. laganna er sett í hendur barnaverndarnefnda sem starfa áfram, samkvæmt 3. mgr. frumvarpsins. Þarna er barnaverndarnefndunum falið að taka ákvörðun um beitingu úrræða með úrskurði. Með úrskurði er dálítið lykilatriði þegar við flettum hérna aftur að 26. gr. laganna, vegna þess að á öðrum stað í frumvarpinu, í 4. mgr., segir: „Barnaverndarnefndir skv. 2. mgr. úrskurða um ráðstafanir skv. 1. mgr. 26. gr.“ Í rauninni mætti segja að þetta væri þegar komið fram, þegar sé búið að segja að barnaverndarnefndirnar úrskurði um þetta vegna þess að um það snýst 3. mgr. 13. gr. laganna. Nema hvað, ef við skoðum þessa 1. mgr. 26. gr. laganna þá er fleira í þeirri málsgrein heldur en bara það verkefni að úrskurða. Mér sýnist á frumvarpstextanum að það sé bara búið að ná utan um það hlutverk barnaverndarþjónustunnar og umdæmisráða að úrskurða. En í 1. mgr. 26. gr. segir að hafi úrræði ekki skilað árangri að mati barnaverndarþjónustu eða að barnaverndarþjónusta hafi eftir atvikum komist að þeirri niðurstöðu að þau séu ófullnægjandi þá geti barnaverndarþjónusta farið fram á það við umdæmisráð að ráðið úrskurði. Ég sé ekki að fyrri hluti þessarar setningar sé nokkurs staðar tekinn fyrir í frumvarpinu. Það að leggja mat á það hvort úrræði hafi skilað árangri, það að komast að þeirri niðurstöðu að þau séu ófullnægjandi, það að fara fram á að það sé úrskurðað — mér sýnist þetta hafa týnst. Það er kannski vitleysa hjá mér, vonandi. En það er þá eitthvað sem velferðarnefnd þarf að fullvissa sig um. Og velferðarnefnd þarf að fullvissa sig um að í lögunum, sem eru 100 greinar og þar sem verið að breyta svona 80% greinanna, í þeim öllum sé þess gætt að hvert einasta verkefni laganna sé í tryggum höndum með þeim breytingum sem lagðar eru til. Þetta er ekkert stærsta verkefnið sem Alþingi hefur tekist á við. Það er hins vegar tímafrekt ef við ætlum að vera algerlega fullviss um að það hafi tekist.

En forseti Alþingis setti engan forgang í að koma þessu máli framarlega á dagskrá, lagði aldrei áherslu á það hér fyrir páska að semja við stjórnarandstöðuna um að hleypa þessu máli sem fyrst í gegn — það er ekki fyrr en í þessari viku, vikunni fyrir sveitarstjórnarkosningar, sem allt í einu á að fara að ræða þetta mál. En það er vegna seinagangs forseta Alþingis sem við stöndum frammi fyrir því að annaðhvort vinna þetta mál illa og ná að samþykkja það fyrir kosningar eða vinna það vel. Ég held að í máli eins og þessu þá eigi seinni valkosturinn eiginlega alltaf að vera sá eini sem er í boði. Í ljósi þess að við höfum tíma upp á að hlaupa eftir kosningar þá vonast ég til þess að velferðarnefnd finni það hjá sér að flýta sér ekki um of með þetta mál heldur rýna það alveg ofan í kjölinn og koma síðan með það aftur inn í þingsal til 2. umr. og 3. umr. og til afgreiðslu vikuna eftir sveitarstjórnarkosningar, vegna þess að það er mikilvægt að vanda til verka við innleiðingu breytinga á framkvæmd þessara laga.