152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[15:35]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Nú sat hann hér á síðasta kjörtímabili þegar það frumvarp til laga sem nú er verið að fresta framkvæmd á kom til umræðu og meðferðar og samþykktar á Alþingi. Helsta breytingin var sú, sem er núna verið að fresta, að barnaverndarþjónusta væri á svæði þar sem var lágmark 6.000 íbúar, eins konar sveitarfélagasamlag, og svo umdæmisráð barnaverndar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þessa stjórnskipun svara kalli nútímans, vera nægjanlega öfluga til að auka barnavernd í landinu. Ég tók eftir því að hv. þm. Helga Vala Helgadóttir sagði að undirbúningstíminn hefði verið of skammur, Alþingi hefði ekki haft nægan tíma til að fjalla um málið o.s.frv. Telur hann að þær breytingar sem nú er verið að fresta framkvæmd á til 1. janúar 2023 vera fullnægjandi eða ekki? Er þetta nægilega vönduð löggjöf sem nú er verið að fresta framkvæmd á? Þeir segja að þeir héldu að tæpt ár væri nægilegur tími. En svo segja þeir í bréfi sem barst menntamálaráðherra — þetta er Samband íslenskra sveitarfélaga — að þetta sé umfangsmikil og flókin breyting og tímafrek þegar þeir fara í hana, en þeir ætluðu sér tæpt ár áður.