152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[15:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég fylgdist því miður ekki nægilega vel með þessari umræðu og hún fór alla vega ekki hátt. Það var jú þverpólitísk nefnd að störfum innan þingsins en það virðist ekkert hafa verið mikil umræða í samfélaginu. Ég var staddur erlendis á þessum tíma að mestu leyti en ég varð ekki var við neina mikla umræðu úti í samfélaginu um barnaverndarmál. Það virðast ekki hafa verið haldnar stórar ráðstefnur eða hvatt til umræðu í samfélaginu fyrir utan þessa þverpólitísku nefnd. Það er oft gott að víkka umræðuna til að fá sem flesta að og fá gagnrýni. Hv. þingmaður segir að þetta hafi verið keyrt svolítið áfram undir lokin, en ég er bara forvitinn: Voru einhver ákveðin mál önnur en stjórnskipanin í þessum málum? Þetta ber öll þess merki hvað sveitarfélag eru veik í landinu — það er verið að setja lágmarksíbúafjölda, 6.000 manns — og að þau hafi ekki ráðið við þennan málaflokk. Ég spyr hvort hann telji líka nauðsynlegt að miðstjórnarvaldið, ríkisvaldið, komi meira að þessum málum, sérstaklega á landsbyggðinni, utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem eru mjög fámenn sveitarfélög. Hvort hann telji að ef það koma upp barnaverndarmál þá sé nálægðin það mikil og fámennið einfaldlega slíkt og skortur á sérfræðiþekkingu að það sé nauðsynlegt að ríkið komi meira að barnaverndarmálum í landinu en það gerir í raun. Var þetta rætt í nefndinni og veikleiki sveitarfélaga til að ráða við þessi mál? Hvaða mál hefði þurft að ræða betur í nefndinni og voru eftir eftir að þetta mál var keyrt áfram? Það væri mjög fróðlegt að heyra ef hv. þingmaður gæti gefið sér smátíma til að rekja helstu álitamálin sem voru í þverfaglegu nefndinni.