barnaverndarlög.
Virðulegur forseti. Ég tel að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða þar sem málaflokkurinn er gríðarlega mikilvægur. Ástæða þess að ég vil taka þátt í þessum umræðum er sú að ég hef setið í barnaverndarnefnd Reykjavíkur, sat árið 2008 í barnaverndarnefnd og í starfi mínu sem sýslufulltrúi hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði og úti á landi þá sinnti ég fjölskyldumálum eða sifjamálum, þar á meðal úrskurðaði ég í meðlagsmálum og umgengnismálum barna. Einnig hef ég sem lögmaður flutt mál fyrir barnaverndarnefnd Reykjavíkur og fyrir dómstólum. Ég hef haft mikinn áhuga á þessum málaflokki síðan, eftir þessi störf mín, og ég tel að réttaröryggi í barnaverndarmálum sé mun minna en t.d. í skattamálum. Réttaröryggi í skattamálum er miklu meira en nokkurn tímann í barnaverndarmálum. Af hverju segi ég það? Það er vegna þess að í skattamálum er starfandi fagnefnd, yfirskattanefnd yfir allt landið sem sérfræðingar sitja í og úrskurða í skattamálum. Við erum ekki með neitt slíkt batterí eða slíka stofnun í barnaverndarmálum. Það er grundvallaratriði að við þurfum að hafa nefnd yfir allt landið, stjórnsýslunefnd með fagfólki í hæsta gæðaflokki sem úrskurðar í þessum málum fyrir allt landið. Ég tel að núverandi kerfi þar sem mál eru rekin fyrir barnavernd, pólitískt skipaðri barnaverndarnefnd, og fara síðan þaðan fyrir dómstóla, með meðdómendum, sé allt of þungt og engan veginn fullnægjandi kerfi. Það væri miklu meira réttaröryggi í því ef það væri sérfræðinefnd svipuð og yfirskattanefnd. Það eru miklu formfastari kröfur fyrir dómstólum, tekur lengri tíma o.s.frv., með því að hafa yfirnefnd í barnaverndarmálum í landinu. Ég get tekið dæmi um störf barnaverndarnefnda. Þegar ég var í barnaverndarnefnd var það þannig að við fengum risatösku, hver nefndarmaður, á fimmtudögum, stóra tösku með stórum skjalabunka sem við þurftum að lesa fram til þriðjudags en þá var fundur um morguninn. Við þurftum að vera búin að lesa öll þessi gögn á þriðjudeginum og maður sá að það var enginn möguleiki á að geta farið yfir þetta með fullnægjandi hætti og fara svo að úrskurða á staðnum í mikilvægum málum. Það var engan veginn fullnægjandi. Ég er nú menntaður lögfræðingur og hef unnið í þessum málaflokki og annað slíkt og maður getur ímyndað sér hvernig þetta er úti á landi þegar koma erfið mál og þú hefur skamman tíma til að lesa og svo áttu að þurfa að fara að taka ákvarðanir í mjög veigamiklum málum. Það er raunverulega þannig að ég tel að stjórnkerfi barnaverndarmála, fyrir þessar breytingar sem voru gerðar í fyrra, hafi verið með hreinum ólíkindum.
Ég tel að breytingarnar sem áttu sér stað í fyrra, sem eru ákvæði um barnaverndarþjónustu og umdæmisráð barnaverndar, sem núna er verið að fara fram á frestun framkvæmdar á til 1. janúar, hafi ekki verið fullnægjandi breytingar. Ég tel að barnaverndarþjónusta sem sett var á laggirnar með frumvarpinu sem varð að lögum í fyrra og nær yfir 6.000 íbúa hið minnsta — það er ekki miðað við landsvæði sem ég held að hefði verið æskilegra — sé ekki fullnægjandi. Það hefði verið miklu æskilegra að barnaverndarþjónusta hefði verið skorin niður og umdæmisráð barnaverndar hefði verið lægsta stjórnsýslustigið. Stækka svæðin enn þá meira og hafa svo yfirnefnd sem úrskurðar í barnaverndarmálum fyrir allt landið. Við lifum í fámennu samfélagi, 360.000 manns, og ég tel að 6.000 manns sé ekki nægilegur fjöldi til að hafa barnaverndarþjónustu, ég tel það of fámennt einfaldlega. Það hefði verið miklu einfaldara líka að hafa eina stofnun á stjórnsýslustiginu, á sveitarstjórnarstiginu, við getum kallað hana umdæmisráð barnaverndar eða barnaverndarþjónustu og síðan nefnd sem myndi úrskurða. Mál færi ekki beint til dómstóla heldur beint til sérfræðinganefndar sem úrskurðar og þaðan til dómstóla. Það er af því að hraðinn í málunum skiptir mjög miklu máli, hann er grundvallaratriði. Sorglegustu málin sem ég sá í starfi mínu í barnaverndarnefnd voru þegar maður sá gömul mál, börn voru kannski orðin 11 ára, 12 ára, að nálgast táningsaldur, og barnavernd hafði ekki gert neitt, beðið í þrjú ár, foreldrar kannski einangra börnin heima og það var ekki búið að gera neitt. Úrræðaleysið var algjört. Ég hef varla kynnst sorglegri málum á ævinni eins og þeim málum sem maður las þar um. En ég tek það fram að ég ber mikla virðingu fyrir störfum félagsráðgjafa, sú starfsstétt er stórmerkileg og stórfróðlegt að fá að kynnast störfum þeirra í barnaverndarmálum, svo það komi fram.
Ég tel að þessi frestun beri þess merki að frumvarpið að lögunum sem samþykkt voru í fyrra hafi ekki fengið nægan undirbúning. Þess vegna er verið að fresta. Það var ekki gefinn nægilega mikill tími við þá lagasmíði. Það kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Við undirbúning málsins var á því byggt að tæplega ár væri nægur tími til innleiðingar breytinganna og að hentugt væri að tengja framkvæmd þeirra við sveitarstjórnarkosningar vorið 2022.“
Annað hefur komið í ljós. Í erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga 25. febrúar 2022, núna í ár, til mennta- og barnamálaráðherra kemur fram, með leyfi forseta, og ég les beint upp úr greinargerðinni:
„Í bréfinu kemur fram að þótt almennt ríki sátt um breytingarnar og þær taldar til þess fallnar að styrkja barnavernd þá sé innleiðing svo umfangsmikilla breytinga flókin og tímafrek. Af ýmsum ástæðum hafi gengið hægar en vonir stóðu til að innleiða og undirbúa breytingarnar.“
Þetta felur í sér raunverulega að menn gerðu sér ekki grein fyrir því hversu flóknar og umfangsmiklar breytingar var verið að gera þarna og þess vegna var að sjálfsögðu tæpt ár engan veginn nægur tími.
Ég tel að þessar breytingar sem voru gerðar í fyrra hafi ekki gengið nógu langt. Það hefði átt að stækka umdæmin enn þá meira og hafa landsnefnd yfir allt landið sem hefði úrskurðað í barnaverndarmálum sem æðsta stjórnsýslustig. Þaðan fær málið til dómstóla. Þannig hefðum við getað tryggt réttaröryggi í barnaverndarmálum og líka hraða og faglega málsmeðferð. Núverandi kerfi tryggir það ekki og þær breytingar sem voru gerðar í fyrra tryggja það heldur ekki. Það er vegna þess að mál fara til dómstóla of snemma. Það er miklu betra að hafa þetta í faglegri úrskurðarnefnd, eins og ég sagði áður, svipað og er í skattamálum. Ég get rökstutt það enn frekar að réttaröryggi í skattamálum á Íslandi er mun meira en í barnaverndarmálum.
Ég tel að þetta frumvarp til laga í fyrra, sem er nú verið að fresta framkvæmd á, sé klassískt dæmi þess að ríkisvaldið sé að reyna að finna út úr því hvernig eigi að sinna barnaverndarmálum gagnvart sveitarfélögunum án þess að krefjast sameiningar. Sveitarfélögin séu það veik að þau geti raunverulega ekki sinnt þessum málaflokki á fullnægjandi hátt. Ég ætla ekki að fara að útskýra það frekar endilega hvernig ég tel að yfirnefndin í barnaverndarmálum ætti að vera á vegum ríkisvaldsins, ekki sveitarstjórnarstigsins. En ég tel að ríkisvaldið, miðstjórnarvaldið, eigi að koma enn frekar að barnaverndarmálum í landinu. Ég er ekki að segja það út af því að mér sé illa við sveitarstjórnarstigið, síður en svo. En við verðum að taka tillit þess að við búum í einu strjálbýlasta landi Evrópu, ekki eina, heldur strjálbýlasta landi Evrópu þar sem tveir þriðju þjóðarinnar búa á höfuðborgarsvæðinu og einn þriðji á landsbyggðinni. Það myndi auka þjónustuna við börn, barnaverndarþjónustu, að ríkisvaldið kæmi enn frekar að þessum málum. Ég skora hér á barnamálaráðherra að nota tímann — jafnvel mætti fresta framkvæmdinni fram á mitt næsta ár — og endurskoða þessa stjórnskipun sem hér hefur verið sett fram með barnaverndarþjónustu og umdæmisráð barnaverndar vegna þess að ég er alveg sannfærður um það að eftir þrjú, fjögur, fimm ár þá verður farið í endurskoðun á þessum lögum þar sem stjórnskipunin er ekki nægilega góð. Ég get bara tekið dæmi úr lögunum sem voru samþykkt í fyrra, um verkefni barnaverndarþjónustu. Þau eru skilgreind neikvætt. Það segir í 10. gr., um hlutverk barnaverndarþjónustu, með leyfi forseta:
„Sveitarfélög skulu starfrækja barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónusta ber ábyrgð á verkefnum og ákvörðunum samkvæmt lögum þessum sem ekki eru sérstaklega falin öðrum, þ.m.t. umdæmisráði barnaverndar, dómstólum eða öðrum stjórnvöldum.“
Ég tel að skilgreiningin á hlutverki barnaverndarþjónustu sé ekki nægilega skýr, þetta er neikvæð skilgreining, þ.e. þau gera allt annað, sjá um öll önnur verkefni sem ekki eru falin öðrum, umdæmisráði, dómstólum og öðrum stjórnvöldum. Mér finnst alveg með ólíkindum að dómstólar séu hérna undir. Þú ert að skilgreina stjórnsýslustofnun innan stjórnsýslunnar og þá þarf ekki að skilgreina hana þannig að hún sjái ekki um hlutverk dómstóla, þannig að þetta er bara villa raunverulega í textanum, hugtakið „dómstólar“ á einfaldlega ekki að vera. Ég sé að það er raunverulega verið að kljúfa upp núverandi barnaverndarnefndir. Bæði er verið að koma á eins konar sveitarfélagasamlagi um barnaverndarþjónustu þar sem lágmarksfjöldinn er 6.000 íbúar, og svo er verið að koma upp umdæmisráði barnaverndar. Þetta er of flókið. Það er miklu betra eða það hefði mátt þess vegna stækka barnaverndarnefndirnar yfir landsvæði og þaðan beint til yfirnefndar sem úrskurðar í barnaverndarmálum. Miklu einfaldara, miklu skilvirkara í staðinn fyrir að búa til tvö ný hugtök, tvær nýjar stofnanir. Þannig að ég tel að þetta muni verða endurskoðað í framtíðinni. Ég myndi giska á eftir svona fimm ár. En ég skora barnamálaráðherra að þetta verði endurskoðað núna, nota frestinn a.m.k. í ár til að endurskoða lögin sem voru samþykkt í fyrra og gera þetta enn þá skilvirkara. Ég tel að þessi frestun sé merki um að undirbúningurinn hafi ekki verið nægjanlegur og breytingarnar gengu alls ekki nógu langt.
Ég vil ljúka máli mínu á því að fagna því að ráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í ákveðna nefnd til að sinna barnaverndarmálum og ég fyrir minn flokk óskaði sérstaklega eftir því að vera tilnefndur í þá nefnd og ég vona að þingflokkurinn samþykki það og bíð spenntur eftir að fá að taka þátt í störfum þeirrar nefndar.