152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[17:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þegar þingflokkar og þingmenn reyna að skipuleggja sig þá er mikill kostur að það sé bærileg tímalína fyrirliggjandi eins og mögulegt er. Þetta er búið að vera algjör furða að fylgjast með að við séum enn í þeirri stöðu núna, klukkan að ganga fimm á þriðjudegi, að vera án þessara gagna eða þessara svara sem við höfum reiknað með núna dögum saman. Ef afstaða Bankasýslunnar eða tengdra stjórnvalda væri sú að það væru ekki forsendur til að svara þessu þá er það bara svar og þá þarf að koma fram. En á meðan ekkert svar berst í þá veruna þá hljótum við að reikna með að þessi skrif séu við það að detta inn. Því verður vonandi fylgt eftir að þetta skili sér núna hvað úr hverju eins og hv. formaður fjárlaganefndar lýsir hér. En ef ætlunin var sú að svara ekki, (Forseti hringir.) þá hefði verið fínt að það kæmi fram, ef það er það sem kemur á daginn á endanum.