152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[17:19]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það hefur verið nokkuð rætt um að það fyrirkomulag sem var á beiðninni til Ríkisendurskoðunar varðandi þá úttekt sem stofnunin stendur nú í á sölum í hlutabréfum á Íslandsbanka væri ekki skynsamlegt. Ég beini því til hæstv. forseta að forseti tæki að sér það verkefni að það yrði skoðað hver fordæmin eru, hversu oft það hafi gerst að ráðherra setji mál í farveg hjá Ríkisendurskoðun með þeim hætti sem nú hefur verið gert. Er þetta einsdæmi eða hefur þetta verið gert margsinnis á fyrri stigum? Það myndi einfalda umræðuna og ég held að margra hluta vegna væri áhugavert að sjá hvað kæmi út úr þeirri skoðun því að við þekkjum það, þingmenn, hvernig ferlið er við að koma máli til Ríkisendurskoðunar. Það eru mjög skýrar reglur um það. Sjálfur hef ég tvívegis farið í gegnum það ferli. (Forseti hringir.) Þannig að það væri áhugavert ef hæstv. forseti myndi hlutast til (Forseti hringir.) um það að þessar upplýsingar væru teknar saman fyrir okkur þingmenn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)